„Fólk veit ekki alla söguna“

Ben White á æfingu með Arsenal.

Ben White á æfingu með Arsenal. AFP/Ben Stansall

Ben White, varnarmaður enska knattspyrnuliðsins Arsenal, segir að almenningur þekki ekki alla söguna á bak við fjarveru hans úr enska landsliðinu en að hann myndi taka sömu ákvörðun aftur.

White, sem er 29 ára, yfirgaf herbúðir Englands á heimsmeistaramótinu 2022 af persónulegum ástæðum og gaf í kjölfarið ekki kost á sér undir stjórn Gareths Southgate.

„Fólk þekkir ekki alla söguna, því ég hef aldrei sagt neitt og ég mun ekki kasta neinum fyrir rútuna,“ sagði White við John Murray á BBC Radio 5 Live.

White sneri aftur undir stjórn Thomas Tuchel í mars, þar sem hann skoraði og fékk á sig vítaspyrnu í 1:1-jafntefli gegn Úrúgvæ á meðan sumir stuðningsmenn bauluðu á hann.

„Þetta gerðist og nú er kominn tími til að halda áfram,“ sagði hann.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅