Sá tíundi úrskurðaður í gæsluvarðhald
Maðurinn var handtekinn í Rúmeníu og framseldur hingað til lands. mbl.is/Árni Sæberg
Erlendur ríkisborgari var í fyrrakvöld úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn lögreglunnar á innflutningi á 106 kílóum af kókaíni í sumar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Maðurinn, sem var handtekinn í Rúmeníu og framseldur hingað, er sá tíundi sem sætir gæsluvarðhaldi í hinu svokallaða Straumsvíkurmáli. Hann mun sæta gæsluvarðhaldi til 9. desember.
Hinir níu, þrír Íslendingar og sex erlendir ríkisborgarar, eru enn í haldi.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗