Úr Fram og í Aftureldingu

Simon Tibbling er farinn frá Fram.

Simon Tibbling er farinn frá Fram. mbl.is/Anton Brink

Sænski miðjumaðurinn Simon Tibbling hefur samið til tveggja ára við knattspyrnudeild Aftureldingar. Hann kemur frá Fram, þar sem hann lék síðustu tvö tímabil.

Tibbling, sem er 32 ára, mun jafnframt taka sæti í þjálfarateymi 2. flokks karla hjá Aftureldingu með Alejandro Zambrano.

„Ég er mjög ánægður og stoltur af því að semja við Aftureldingu. Ég hlakka mikið til að takast á við þetta verkefni og get ekki beðið eftir að byrja,“ sagði Tibbling í tilkynningu félagsins.

Hann gekk til liðs við Fram fyrir tímabilið 2025 og lék 43 leiki fyrir félagið í Bestu deildinni og skoraði fjögur mörk. Hann var valinn í lið ársins í deildinni á sínu fyrsta tímabili.

Tibbling á að baki 366 leiki í efstu deildum í Svíþjóð, Hollandi, Danmörku, Noregi og Íslandi. Hann varð bikarmeistari með Groningen í Hollandi og Brøndby í Danmörku, auk þess að vinna EM með U21 árs landsliði Svía árið 2015. Þá hefur hann leikið einn A-landsleik fyrir Svíþjóð.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅