Halldóra metin hæfust í embætti
Halldóra Þorsteinsdóttir héraðsdómari er fremst umsækjenda um tvö dómaraembætti við Landsrétt að mati dómnefndar um hæfni umsækjenda um embætti dómara. Héraðsdómararnir Björn L. Bergsson og Hulda Árnadóttir eru jafnsett næst henni.
Þetta kemur fram í tilkynningu dómsmálaráðuneytisins og umsögn nefndarinnar, sem er dagsett 6. nóvember. Nefndin hefur skilað umsögninni til dómsmálaráðherra.
Annars vegar er um að ræða skipun í embætti og hins vegar tímabundna setningu til 28. febrúar 2029. Embættin voru auglýst laus til umsóknar 21. ágúst síðastliðinn.
Fimm sóttu um. Auk Halldóru, Björns og Huldu voru umsækjendur héraðsdómararnir Ragnheiður Snorradóttir og Sigríður Elsa Kjartansdóttir. Samkvæmt umsögninni uppfylltu allir umsækjendur almenn hæfisskilyrði embættanna.
Talin færust við að semja dóma
Niðurstaða nefndarinnar byggist á heildarmati á meðal annars menntun, starfsferli, fræðilegri þekkingu, ráðvendni, hæfni og skilvirkni umsækjenda.
Við mat á starfsreynslu vegur þyngst reynsla af dómarastörfum, lögmanns- og málflutningsstörfum og stjórnsýslustörfum sem lúta að úrlausn ágreiningsmála. Þessir þrír matsþættir hafa jafnt vægi.
Nefndin telur Halldóru hafa sýnt mesta færni umsækjenda við að semja dóma. Þar er einkum horft til uppbyggingar, framsetningar og lagalegs rökstuðnings í dómsúrlausnum hennar á fjölbreyttum réttarsviðum. Einnig var litið til þess hvernig úrlausnunum hefði farnast við endurskoðun á æðra dómstigi.
Að mati nefndarinnar eru úrlausnir Halldóru glöggar, studdar gildum lögfræðilegum rökum og á góðu máli. Hún hafi sýnt sjálfstæði, hlutlægni, frumkvæði og skilvirkni í starfi og eigi auðvelt með að skilja aðalatriði frá aukaatriðum.
Fjölbreytt reynsla Halldóru
Í umsögninni kemur fram að Halldóra hafi starfað sem héraðsdómari í rúm sex ár og áður verið aðstoðarmaður í Hæstarétti í um þrjú og hálft ár. Þá hafi hún verið formaður úrskurðarnefndar í ellefu ár og sinnt lagakennslu við þrjá innlenda háskóla í átta ár.
Hún hafi jafnframt ritað fræðibók ásamt öðrum og tólf ritrýndar greinar, þar af þrjár með meðhöfundi, auk fjögurra bókarkafla. Einnig hafi hún komið að undirbúningi lagafrumvarpa og gegnt ýmsum öðrum störfum á sviði lögfræði.
Björn og Hulda jafnsett
Björn á að baki 28 ára lögmannsferil og hefur sinnt málflutningi á fjölbreyttum réttarsviðum. Samkvæmt umsögninni hefur hann gegnt embætti héraðsdómara í tæp sex ár, verið varadómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur í fjögur ár og starfað sem skrifstofustjóri Landsréttar í þrjú ár.
Þá hefur hann meðal annars verið settur ríkissaksóknari, dómari við Félagsdóm og formaður endurupptökunefndar.
Hulda hefur starfað sem lögmaður í um 15 ár og verið héraðsdómari í tæp sex ár. Hún hefur setið í fjölda stjórnsýslunefnda og var formaður óbyggðanefndar frá 2021 til 2025. Áður hafði hún tekið ríkan þátt í störfum nefndarinnar sem varamaður frá árinu 2007.
Hún hefur einnig sinnt háskólakennslu frá árinu 2003 og unnið að undirbúningi lagafrumvarpa.
Dómnefndina skipuðu Helgi I. Jónsson formaður, Helga Melkorka Óttarsdóttir, Ingveldur Einarsdóttir, Jóhannes Sigurðsson og Reimar Pétursson.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗