„Ég er orðlaus og í smá sjokki“

Lína Birgitta Sigurðardóttir er eigandi fatamerkisins Define the Line sem fékk yfir 2.200 pantanir á fjögurra daga afsláttartímabili í tengslum við Singles Day. Samsett mynd/Instagram

Pantanir streymdu inn hjá Define the Line á afsláttardögum og eigandinn segist orðlaus yfir viðtökunum.

Athafnakonan og áhrifavaldurinn Lína Birgitta Sigurðardóttir, eigandi fatamerkisins Define the Line, segist orðlaus yfir fjölda pantana sem bárust fyrirtækinu í tengslum við Singles Day.

Yfir 2.200 pantanir bárust á afsláttartímabilinu og nam heildarsalan um 36,9 milljónum króna, samkvæmt skjáskoti sem hún birti á Instagram.

Afslátturinn gilti frá 8. til 11. nóvember. Lína Birgitta birti myndskeið í sögu á Instagram þar sem hún þakkaði viðskiptavinum fyrir viðtökurnar.

„Get ekki annað en tekið upp vídeó og sagt að ég er orðlaus og í smá sjokki yfir hvað komu bilaðslega margar pantanir yfir Singles Day-afsláttinn hjá Define the Line.“

Lína Birgitta þakkaði viðskiptavinum fyrir stuðninginn á Instagram en heildarsala hjá Define the Line nam um 36,9 milljónum króna á afsláttardögunum. Skjáskot/Instagram

Mikið að gera í vöruhúsinu

Að sögn Línu Birgittu er unnið að því að taka saman pantanirnar í vöruhúsinu. Þar er mikið að gera vegna fjöldans en hún segir að í versta falli fái viðskiptavinir pantanir sínar afhentar á mánudaginn.

Hún lauk myndskeiðinu á því að þakka þeim sem höfðu verslað við fyrirtækið.

„Mig langaði bara að segja takk æðislega og ég kann svo ótrúlega mikið að meta að þú sért að panta hjá Define the Line.“

内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅