Myndskeið sýnir augnablikið þegar fjölbýlið í Brooklyn hrundi - 2 ára barn að leik á stofugólfinu

Myndskeið úr eftirlitsmyndavél náði þeirri skelfilegu stund þegar fjölbýlishús í Brooklyn í New York hrundi til jarðar á miðvikudag með þeim afleiðingum að átta létust, þar af tvö börn á aldrinum 9-10 ára, og 18 særðust.

Myndskeiðið, sem CBS News birti í dag, var tekið upp inni í íbúð Anderson Velez á þriðju og efstu hæð að Flatbush Avenue 1321, þar sem hann bjó með konu sinni og tveimur ungum börnum, aðeins sekúndum áður en byggingin hrundi ofan í byggingargryfju á aðliggjandi lóð þar sem gröftur stóð yfir.

Í upphafi sex sekúndna myndskeiðsins má sjá níu ára gamlan son Velez sækja fjóra lítra af mjólk úr ísskápnum á meðan tveggja ára gamall bróðir hans leikur sér á gólfinu. Eiginkona Velez opnar þá hurð inn í stofuna og öskrar í ofboði, sem fær eldri drenginn til að hlaupa í átt að móður sinni, frá veggnum áður en hann hrynur verulega.

„Að mínu mati bjargaði það lífi hans,“ sagði Velez.

Yngri sonurinn fékk hins vegar brak yfir sig þegar veggurinn hrundi.

Velez, sem var í Bronx í vinnu þegar slysið átti sér stað, sagði að hann hefði fengið örvæntingarfullt símtal frá eiginkonu sinni þegar hún var að biðja björgunarsveitarmenn um að draga tvo syni þeirra upp úr rústunum. 

Það er kraftaverki næst að tveggja ára sonurinn hlaut aðeins skrámur á enni og fótum eftir að hann var dreginn úr rústunum. „Eyrun á honum voru full af óhreinindum, nefið, munnurinn, bakið, allur líkami hans var þakinn óhreinindum,“ sagði Velez.

Velez sagði að eiginkona hans hefði hlotið alvarleg meiðsli á rifbeinum, hrygg og viðbeini og að níu ára gamall sonur hans væri enn á gjörgæsludeild eftir aðgerð.

„Ég er enn í áfalli. Sannleikurinn er sá að ég er að reyna að vera sterkur fyrir syni mína en mér líður hræðilega. Það fór svo margt í gegnum hugann á mér. Ég var að hugsa um börnin mín, vona að þau væru heil á húfi og að ekkert alvarlegt hefði komið fyrir þau. Guð bænheyrði mig því ég bað svo mikið fyrir heilsu þeirra og velferð.“

Fjölskyldan flutti í fjölbýlishúsið fyrr í þessum mánuði eftir að hafa búið í skjóli fyrir heimilislausa. Fjölskyldan er nú hýst á hóteli í Brooklyn sem borgin býður upp á fyrir íbúa sem misstu heimili sín vegna harmleiksins. 

Síðdegis á fimmtudag tilkynnti slökkvilið borgarinnar að leitar- og björgunaraðgerðum á vettvangi væri lokið og staðfesti að engin fleiri fórnarlömb hefðu fundist. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅