Bað stuðningsmenn afsökunar eftir agabrot

Jack Grealish bað stuðningsmenn afsökunar.

Jack Grealish bað stuðningsmenn afsökunar. AFP/Peter Powell

Enski knattspyrnumaðurinn Jack Grealish bað stuðningsmenn Everton afsökunar eftir 4:1-sigur í æfingaleik gegn Derby County í gær. Hann lék í 90 mínútur í leiknum sem fór fram fyrir luktum dyrum.

Grealish, sem er að láni frá Manchester City, var tekinn úr hópnum fyrir sigurleik í deildabikarnum gegn Newcastle United fyrir að brjóta agareglur félagsins og missti af nokkrum leikjum.

„Ég vil biðja stuðningsmennina og alla hjá félaginu afsökunar á því að hafa ekki getað hjálpað liðinu síðustu vikur,“ skrifaði Grealish á Instagram.

„Ég elska að spila fyrir þetta félag og get ekki beðið eftir að spila aftur fyrir framan ykkur í Everton-treyjunni.“ Hann vonast til að snúa aftur gegn Brentford 23. nóvember.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅