Tilboð borist í alla hlutina
Tilboð hafa borist í alla hluti Bláa lónsins sem eru í boði í almennu hlutafjárútboði sem lýkur nú klukkan 16:00. Fyrr í dag var tilkynnt um að tilboð hefðu borist í alla hluti í A tilboðsbók, en hún er fyrir almenna fjárfesta og telur 30% af magninu.
Nú um klukkan 15:30 barst tilkynning um að tilboð hefði borist í alla hlutina, þar með í B tilboðsbók, sem er fyrir fjárfesta og telur 70% af heildarmagninu.
Gert er ráð fyrir að niðurstöður útboðsins verði birtar eigi síðar en á mánudaginn.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗