Manndrápsdómur nægði ekki einn og sér til brottvísunar

Í umsögn lögreglu frá júní 2025 kom fram að maðurinn hefði meðal annars verið grunaður um óheimila vinnu og dvöl hér á landi, brot gegn endurkomubanni og akstur án gildra ökuréttinda. Ljósmynd/Colourbox

Kærunefnd útlendingamála hefur fellt úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar um að brottvísa albönskum ríkisborgara og banna honum endurkomu til Íslands í tólf ár.

Nefndin taldi ekki hafa verið sýnt nægilega fram á að brottvísun hans væri nauðsynleg vegna öryggis ríkisins eða almannahagsmuna.

Maðurinn hafði verið dæmdur fyrir manndráp í Albaníu og var jafnframt sakborningur í máli vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni hér á landi. Nefndin taldi eldri dóminn ekki nægja einan og sér til brottvísunar á þeim grundvelli sem Útlendingastofnun hafði beitt. Gögn um kynferðisbrotamálið væru takmörkuð og mat lögreglu á þeirri ógn sem stafaði af manninum ábótavant.

Úrskurðurinn er frá 15. október. Þar kemur fram að afla þurfi frekari og ítarlegri gagna áður en unnt sé að taka afstöðu til þess hvort háttsemi mannsins hér á landi geti talist ógn við almannahagsmuni.

Sótti um dvalarleyfi sem maki Íslendings

Maðurinn sótti í janúar 2023 um dvalarleyfi sem maki íslensks ríkisborgara. Honum var heimilt að dvelja hér á landi meðan umsóknin var til meðferðar.

Útlendingastofnun ákvað 11. febrúar síðastliðinn að brottvísa honum og banna honum endurkomu í tólf ár. Hann kærði ákvörðunina daginn eftir og féllst kærunefndin síðar á að fresta réttaráhrifum hennar meðan kæran væri til meðferðar.

Brottvísunin byggðist á heimild í lögum um útlendinga til að vísa útlendingi án dvalarleyfis úr landi ef það er nauðsynlegt vegna öryggis ríkisins eða almannahagsmuna. Vísaði stofnunin til refsidóms mannsins í Albaníu og gagna lögreglu um grun um kynferðisbrot gegn barni.

Dómur frá 2007 nægði ekki einn og sér

Maðurinn var árið 2007 sakfelldur í Albaníu fyrir manndráp og vopnalagabrot. Brotin voru framin árið 2004 og fólust meðal annars í því að hann skaut mann til bana í samverknaði við aðra. Hann var dæmdur í 18 ára fangelsi en þriðjungur refsingarinnar felldur niður og varð hún því tólf ár.

Nefndin taldi verða ráðið af dómnum að maðurinn hefði lokið afplánun á árunum 2016 til 2017. Gögn frá albönskum fangelsisyfirvöldum um afplánunartímann lágu þó ekki fyrir.

Við mat sitt hafði nefndin meðal annars til hliðsjónar sérstaka brottvísunarheimild vegna erlendra refsidóma. Hún miðast við að viðkomandi hafi á síðustu fimm árum verið dæmdur til refsingar eða afplánað refsingu erlendis fyrir tiltekna refsiverða háttsemi.

Að þessu virtu taldi nefndin dóminn frá 2007 ekki einan og sér sýna fram á að nauðsynlegt væri að brottvísa manninum vegna öryggis ríkisins eða almannahagsmuna.

Tók ekki undir mat lögreglu

Í umsögn lögreglu frá júní 2025 kom fram að maðurinn hefði meðal annars verið grunaður um óheimila vinnu og dvöl hér á landi, brot gegn endurkomubanni og akstur án gildra ökuréttinda.

Lögregla taldi hann vera raunverulega, yfirvofandi og nægilega alvarlega ógn við grundvallarhagsmuni samfélagsins, með hliðsjón af manndrápsdóminum, þótt hann hefði ekki hlotið dóm hér á landi eða verið grunaður um sérstaklega alvarleg brot samkvæmt umsögninni.

Nefndin tók ekki undir að eldri dómurinn og framangreind brot nægðu til þeirrar niðurstöðu. Þótt háttsemin sýndi ákveðið brotamynstur væri hún ekki þess eðlis að hún teldist ógn við almannahagsmuni.

Þá tók umsögn lögreglu ekki mið af kynferðisbrotamálinu. Mat hennar næði því ekki til málsatvika í heild og væri ábótavant af þeim sökum.

Takmörkuð gögn um kynferðisbrotamálið

Samkvæmt upplýsingum sem nefndin aflaði var mál vegna gruns um kynferðisbrot mannsins gegn barni yngra en 15 ára til meðferðar hjá héraðssaksóknara.

Nefndin taldi málið alvarlegt og að það kynni að varða grundvallarhagsmuni samfélagsins. Það væri hins vegar á rannsóknarstigi. Mjög takmörkuð gögn lægju fyrir um skýrslutöku og hvorki hefði verið gefin út ákæra né gengið dómur.

Við beitingu brottvísunarheimildarinnar yrði að gera ríkar kröfur um rökstutt mat lögreglu og gögn sem sýndu fram á umrædda ógn. Fyrirliggjandi gögn væru ekki fullnægjandi og afla þyrfti frekari upplýsinga.

Hafnaði rökum um aukna vernd

Maðurinn byggði kæru sína einkum á því að hann nyti aukinnar verndar gegn brottvísun sem aðstandandi EES-borgara. Hann væri kvæntur íslenskri konu og ætti með henni barn sem þau færu sameiginlega með forsjá yfir.

Nefndin hafnaði því að sérreglur um EES-borgara og aðstandendur þeirra ættu við. Ekkert í gögnum málsins benti til þess að hjónin hefðu hafið fjölskyldulíf í öðru EES- eða EFTA-ríki. Réttindi mannsins grundvölluðust því á íslenskum landsrétti.

Nefndin taldi engu að síður skilyrði þeirrar brottvísunarheimildar sem Útlendingastofnun hafði beitt ekki uppfyllt. Var ákvörðunin um brottvísun og tólf ára endurkomubann því felld úr gildi.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅