„Dagurinn í dag sýndi okkur hvað ef“

Bilunin hefur nú varað í yfir 20 klukkustundir.

Bilunin hefur nú varað í yfir 20 klukkustundir. AFP/Manan Vatsyayana

Víðtæk bilun í þjónustu Microsoft ætti að vera íslenskum fyrirtækjum og stofnunum mikilvæg áminning um hversu háð þau eru þjónustu tæknirisans.

Ingólfur Andri Ágústsson, netöryggissérfræðingur hjá OK, segir bilunina sýna hversu viðkvæm starfsemi getur orðið þegar allar helstu lausnir eru á einum stað. Mikilvægt sé að fyrirtæki hafi skýrar varaleiðir þegar þjónusta bregst.

„Við Íslendingar treystum svolítið á Microsoft. Við erum komin með flest allt, öll okkar tól í skýið hjá Microsoft,“ segir Ingólfur í samtali við mbl.is.

„Við erum svona svolítið með öll eggin í sömu körfunni og margir hafa verið að lenda í því einmitt að vera kannski ekki með varaleið.“

„Stóru fyrirtækin geta líka klúðrað hlutunum“

Ingólfur segir ekkert hafa komið fram sem staðfesti að netárás hafi valdið truflununum. Microsoft hafi sjálft vísað til þess að vinna við kerfi fyrirtækisins hafi farið úrskeiðis, með þessum víðtæku afleiðingum

Það veki þó sérstaka athygli hversu langan tíma taki að koma þjónustunni aftur í eðlilegt horf.

Tæknibilunin hefur nú varað í yfir 20 klukkustundir, en notendur Outlook-póstþjónustunnar hafa orðið varir við að hluti þjónustunnar er að einhverju leyti farinn að virka. Enn er þó langt í land með að full virkni sé komin á kerfin. 

„Það er kannski það stóra í þessu hvað þetta var lengi,“ segir Ingólfur, en bilunin minni á að jafnvel hjá stærstu tæknifyrirtækjum heims geti orðið mistök.

„Stóru fyrirtækin geta líka klúðrað hlutunum og þetta er auðvitað bara kerfi eins og hvert annað kerfi.“

Er auðvitað bara tölva

Ingólfur tekur fram að Microsoft bjóði almennt upp á mjög örugga og áreiðanlega þjónustu. Það breyti þó ekki því að fyrirtæki og stofnanir þurfi að geta haldið starfsemi sinni gangandi þegar kerfin liggja niðri.

„Við þurfum að skipuleggja betur hvernig við ætlum að bregðast við, af því að við getum hreinlega ekki setið og beðið endilega eftir að þjónustuaðilinn klári að vinna vinnuna. Við þurfum að geta haldið áfram sjálf.“

Hann nefnir sérstaklega mikilvægi þess að hafa aðrar samskiptaleiðir tiltækar og huga að því hvort öryggisafrit og öryggisvöktun séu einnig háð Microsoft-lausnum.

Ingólfur Andri telur að bilunin muni vekja fyrirtæki og stofnanir til umhugsunar. Ljósmynd/Aðsend

„Erum við að afrita Microsoft-lausnirnar okkar með Microsoft-lausn?“ spyr hann og segir slíka áhættu geta haft alvarlegar afleiðingar.

Ingólfur telur að bilunin muni vekja fyrirtæki og stofnanir til umhugsunar um viðbúnað sinn.

„Við þurfum að hugsa svolítið hvað ef, af því að dagurinn í dag sýndi okkur hvað ef.“

Hann segir atvikið jafnframt minna á að skýjaþjónusta sé ekki óskeikul, þótt hún sé rekin af alþjóðlegum tæknirisa. „Þetta er auðvitað bara tölva, nema bara hjá öðrum.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅