Bað stuðningsmenn afsökunar eftir agabrot
Enski knattspyrnumaðurinn Jack Grealish bað stuðningsmenn Everton afsökunar eftir 4:1-sigur í æfingaleik gegn Derby County í gær. Hann lék í 90 mínútur í leiknum sem fór fram fyrir luktum dyrum.
Grealish, sem er að láni frá Manchester City, var tekinn úr hópnum fyrir sigurleik í deildabikarnum gegn Newcastle United fyrir að brjóta agareglur félagsins og missti af nokkrum leikjum.
„Ég vil biðja stuðningsmennina og alla hjá félaginu afsökunar á því að hafa ekki getað hjálpað liðinu síðustu vikur,“ skrifaði Grealish á Instagram.
„Ég elska að spila fyrir þetta félag og get ekki beðið eftir að spila aftur fyrir framan ykkur í Everton-treyjunni.“ Hann vonast til að snúa aftur gegn Brentford 23. nóvember.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗