Þórður Snær segir að sagan hafi dæmt bábiljurnar um veiðigjöld – Methagnaður og glænýr frystitogari

Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingar, segir að baráttan fyrir leiðréttingu veiðigjalda í fyrra hafi verið ein sú mikilvægasta í íslenskri stjórnmálasögu. Hamfaraspár stórútgerðarinnar og stjórnarandstöðunnar hafi fallið um sjálfar sig.

„Íslenskur sjávarútvegur átti að fara á hliðina ef þjóðin fengi aðeins meira fyrir afnot útgerða af fiskveiðiauðlindinni. Fjárfestingar áttu að stöðvast, störf að hverfa og byggðir að leggjast af. Svo voru veiðigjöldin leiðrétt,“ segir Þórður Snær í færslu á vefsíðu sinni, Kjarnyrt.

„Sextán mánuðum síðar hafa skráðu stórútgerðirnar þrjár hækkað um 200 milljarða króna í verði, hagnaður þeirra á fyrri árshelmingi rúmlega tvöfaldast og nýr frystitogari verið keyptur. Fjárfest er fyrir milljarða í öðrum fyrirtækjum og eigendurnir verða sífellt ríkari. Svartnættið reyndist einkum felast í því að greiða aðeins meira til samfélagsins sem á auðlindina. Nú liggur fyrir hvers virði þessar hamfaraspár voru. Og fyrir hvern þær voru settar fram,“ segir hann.

Sagan dæmir

Að mati Þórðar Snæs mun sagan dæma baráttuna fyrir leiðréttingu veiðigjalda á síðasta ári sem eina þá mikilvægustu í íslenskri stjórnmálasögu. Það er baráttu fyrir því að þjóðin myndi fá sanngjarna hlutdeild í arðinum sem hún skapar.

Fyrirstaðan gegn þessu hafi verið leidd af Sjálfstæðisflokknum, pólitískum armi Samtaka íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja og öðrum lobbýistum í Borgartúni með stuðningi Framsóknarflokks og Miðflokks.

„Peningum var ausið í rándýrar auglýsingaherferðir sem gerðu lítið annað en að opinbera hversu aftengd fáveldisstéttin á Íslandi, og stjórnmálamennirnir sem hún á, er orðin raunveruleikanum og samfélaginu sem bjó hana til,“ segir Þórður Snær. „Hræðsluáróðurinn var yfirgengilegur. Byggðir áttu að leggjast í eyði ef lögin yrðu samþykkt. Atvinnuvegir að leggjast af. Allur fiskur yrði fluttur úr landi og enginn myndi nokkru sinni aftur fjárfesta innan íslensks sjávarútvegs.“

Það vegna þess að það átti að láta fjórar fjölskyldur og eitt kaupfélag, sem eiga samanlagðan auð upp á 500 milljarða króna hið minnsta en sennilega miklu meira, borga aðeins meira af árlegum hagnaði sínum til samneyslunnar.

Stjarnan Jens Garðar Helgason

Nefnir Þórður Snær sérstaklega Jens Garðar Helgason, varaformann Sjálfstæðisflokksins og formanns SFS 2014 til 2020 sem „stórstjörnu“ þessarar herferðar. Hann hafi sagt það „heilaga skyldu“ sína að berjast gegn þessu óréttlæti sem hafi verið beint að ríkasta fólki landsins.

„Öllu öðru átti að fórna í þessari heilögu baráttu, en það eina sem tapaðist á endanum var pólitískur trúverðugleiki Jens Garðars og ýmissa annarra stjórnmálamanna sem tóku þátt í að málþæfa þetta þjóðþrifamál í 160 tíma, og settu með því Íslandsmet,“ segir Þórður Snær.

Fleiri hafi farið mikinn í umræðunni. Til dæmis Gunnþór Ingvarsson, forstjóri Síldarvinnslunnar, sem sagði í umsögnum til Alþingis að framlegð myndi þurrkast upp og það myndi koma niður á skipaflotanum. Síldarvinnslan sjálf myndi setja frekari fjárfestingar á ís.

Sjá einnig:

Deilt um Jens Garðar – „Ósmekklegt að draga börn inn í pólitíska umræðu“ – „Gríðarlegir hagmunir fyrir manninn og fjölskyldu hans“

SFS hafi einnig sagt að tölur staðfestu að rekstur myndi þyngjast verulega. Frekari samþjöppun yrði í greininni og störf myndu tapast.

Sigurður Ingi Jóhannsson, Bergþór Ólason, Jón Gunnarsson og Njáll Trausti Friðbertsson hafi verið háværir og Morgunblaðið birt frídreifðu blaði með stríðsfyrirsögninni: „Tekjufall í sjávarútvegi.“

16 mánuðum eftir frumvarpið sé hins vegar hægt að máta þessar bábiljur við veruleikann. Það er út frá gagnagrunni Deloitte. Hann segir aðra sögu því að hagnaður geirans jókst um 51 milljarð króna eftir að skattar og veiðigjöld höfðu verið reiknuð. Það er 19 milljörðum meira en árið áður. Eigið fé er skráð 504 milljarðar króna.

„Þennan auð hafa stærstu aðilarnir í sjávarútvegi notað til að kaupa upp margt annað í íslensku samfélagi. Um það er auðvitað enginn vafi,“ segir Þórður Snær. „Þar er bæði um að ræða fyrirtæki í óskyldum rekstri en líka minni útgerðir sem héldu á kvóta. Því hafa yfirráð yfir fákeppnismörkuðum á Íslandi sem heimili landsins hafa ekkert val um að versla við og nýting á þjóðareigninni í hafinu færst á sífellt færri hendur.“

Nýr togari

Vísar hann aftur til Síldarvinnslunnar sem hafði gefið út sínar viðvaranir í fyrra. Nú gefa þeir út annars konar viðvaranir.

„Í vikunni gaf Síldarvinnslan svo út jákvæða afkomuviðvörun vegna níu mánaða uppgjörs sem væntanlegt er á næstu vikum. Á mannamáli þýðir það að þessi stórútgerð er að græða miklu meira í ár en hún áætlaði,“ segir Þórður Snær. „Rekstrarhagnaðurinn var þegar orðinn meiri á þessu ári í september en hann var allt síðasta ár og meiri en hófsömustu áætlanir fyrir árið 2026 gerðu ráð fyrir allt árið. Nú stefnir hann í að verða allt að 140 milljónir evra, sirka 20 milljarðar króna, sem er um 37 prósentum meira en í fyrra. Hér er auðvitað um methagnað að ræða. Það sem vakti enn meiri athygli var tilkynning Síldarvinnslunnar um kaup á glænýjum frystitogara frá Tyrklandi.“

Að lokum segir Þórður Snær að málið kenni okkur að láta stórútgerðina og hagaðila hræða okkur til hlýðni.

„Það er vert að hafa þetta allt í huga þegar hagaðilar og stjórnmálamennirnir þeirra stíga upp til að selja okkur að allt fari til fjandans ef atvinnuvegir greiði aðeins meira til samneyslunnar. Dæmin um besta rekstrarár í sögu íslensks sjávarútvegs sem rakin eru hér að ofan, og hafa gert fólk sem átti þegar mörg hundruð milljarða króna enn ríkara þrátt fyrir aðeins hærri veiðigjöld, sýna að þetta er einfaldlega taktík úr handbók sem er ætlað að hræða okkur til hlýðni,“ segir hann.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅