Neytendastofa sektar Orkuna um rúma milljón

Orkan hélt því fram að ekki hafi verið um hefðbundnar auglýsingar að ræða. mbl.is/sisi

Neytendastofa hefur sektað Orkuna um 1,3 milljónir króna vegna birtingar ósannaðra fullyrðinga fyrirtækisins þar sem vísað er til „lægsta verðsins“ sem hafi brotið gegn banni því er ákvörðun Neytendastofu kveður á um.

Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu á vef Neytendastofu, en stofnunin tók einnig ákvörðun gegn Orkunni IS ehf. í september árið 2021 vegna fullyrðinga um „lægsta og ódýrasta eldsneyti landsins“. Var niðurstaða Neytendastofu sú að félagið hefði viðhaft villandi og óréttmæta viðskiptahætti og var félaginu bönnuð birting fullyrðinganna.

Í ákvörðun Neytendastofu sem birt var í dag segir:

„Mál þetta lýtur að auglýsingum Orkunnar IS ehf. þar sem notast er við fullyrðingar um „Lægsta verðið“ og þá hvort birting umræddra auglýsinga teljist brot gegn ákvörðun Neytendastofu nr. 30/2021. Umræddar fullyrðingar eru eftirfarandi: „Lægsta verðið,“ „Lægsta verðið er á Dalvegi,“ „Lægsta verðið er í Suðurfelli“ og „Lægsta verðið hjá Orkunni – 73 stöðvar um land allt“.

Taldi nýju fullyrðingarnar ólíkar þeim gömlu

Taldi Orkan ofangreindar fullyrðingar ólíkar þeim fullyrðingum sem fyrri ákvörðun sneri að en þar hafi fullyrðing um lægsta verðið verið svohljóðandi: „lægsta verðið á höfuðborgarsvæðinu – skilyrðislaust“.

Þær fullyrðingar sem deilt væri um í máli þessu innihéldu ekki orðin „höfuðborgarsvæðið“ og „skilyrðislaust“ og væru þær því ólíkar þeim sem voru undir í fyrri ákvörðun Neytendastofu.

Einnig hafi umræddar fullyrðingar ekki birst í formi auglýsinga til almennings heldur í formi tilkynninga til annars vegar þeirra sem fylgjast með félaginu á Facebook og hins vegar til notenda vefsíðu félagsins.

Buðu lægsta verðið að Costco undanskildu

Þá hafi ekki falist í tilkynningunum fullyrðing um að Orkan bjóði lægra verð en samkeppnisaðilar sínir heldur hafi í fyrirsögn auglýsinganna verið tilvísun til þeirra stöðva þar sem félagið bjóði sitt lægsta verð.

Benti fyrirtækið þar að auki á að eldsneytisverð Orkunnar hefði engu að síður verið það lægsta á landinu alla daga frá 9. september 2025 skv. vefsíðunni gsmbensin.is, en rétt sé að geta þess að verð Costo séu ekki birt á umræddri vefsíðu enda greiði viðskiptavinir þess fyrirtækis að hluta fyrir eldsneytið í formi félagsgjalda í lokuðu viðskiptakerfi.

Fyrirtæki þurfi að geta fært sönnur fyrir fullyrðingum

Eins og að framan greinir „heldur Orkan því fram að ekki hafi verið um hefðbundnar auglýsingar að ræða, að frátaldri auglýsingu með fullyrðingunni „Lægsta verðið hjá Orkunni – 73 stöðvar um land allt“, heldur tilkynningar til þeirra er fylgi félaginu á samfélagsmiðli og til notenda vefsíðu félagsins,“ segir í ákvörðuninni.

Er einnig bent á að í þágildandi lögum nr. 57/2005 um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu var kveðið á um að ákvæði laganna giltu ekki einvörðungu um fullyrðingar sem birtar eru í auglýsingum heldur þyrftu fyrirtæki að geta fært sönnur fyrir fullyrðingum sem fram koma í auglýsingum eða með öðrum hætti.

Réttlæti ekki að sleppa félaginu úr samanburði

„Allt að einu er það álit Neytendastofu að fullyrðingar þær sem um er deilt í fyrirliggjandi máli teljist til auglýsinga enda eru þær settar fram í viðskiptalegum tilgangi, beinast að vörum félagsins og fela í sér fullyrðingu um verðhagræði,“ segir í ákvörðuninni.

„Álit Neytendastofu um það hvort taka beri eldsneytissölu Costco með í samanburði er viðkemur auglýsingum er varða eldsneytisverð liggur fyrir, sbr. t.d. ákvörðun Neytendastofu nr. 60/2020. Afstaða Neytendastofu er að líklegt sé að hinn almenni neytandi myndi ætla að Costco væri með í umræddum samanburði þar sem félögin eru keppinautar við sölu eldsneytis.“

Sé það álit Neytendastofu að félagsgjald Costco réttlæti ekki eitt og sér að félaginu sé sleppt úr samanburði sem liggur að baki „óskilyrtri auglýsingu“ á borð við „Lægsta verðið“ enda sé fullyrðingin afdráttarlaus og án allra afmarkana.

Banna Orkunni notkun fullyrðinga um lægsta verðið

Vert er hér að nefna að undir rekstri málsins tóku gildi ný markaðssetningarlög nr. 44/2026, en við gildistöku þeirra féllu úr gildi lög nr. 57/2005 um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.

Um þær breytingar sem innleiddar voru með nýju lögunum segir í ákvörðuninni að þær hafi ekki haft í för með sér efnislegar breytingar er við kemur viðskiptaháttum fyrirtækja, eins og „deilt hafi verið um í umræddu máli“, en með vísan til nýju laganna „telur stofnunin rétt að banna Orkunni IS ehf. notkun fullyrðinga um lægsta verðið svo villandi sé fyrir neytendur.“

Með vísan til þeirra sjónarmiða sem rakin voru í ákvörðuninni og „að teknu tilliti til umfangs brotanna, fyrri ákvörðunar stofnunarinnar og jafnræðis- og meðalhófsreglu stjórnsýslulaga“ taldi Neytendastofa hæfilegt að leggja á Orkuna IS ehf. stjórnvaldssekt að fjárhæð 1.300.000 krónur.

Ber Orkunni að greiða sektina í ríkissjóð eigi síðar en þremur mánuðum frá dagsetningu ákvörðunar þessarar, en ákvörðunin er dagsett 30. október 2026.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅