Krefja eigendur Icelandair svara um framtíðina
Stéttarfélögin beina þremur áskorunum til lífeyrissjóða sem eiga hlut í Icelandair. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Forystumenn þriggja stéttarfélaga starfsfólks Icelandair lýsa þungum áhyggjum af stefnu flugfélagsins og óttast að uppbygging starfsemi þess erlendis geti orðið á kostnað íslenskra starfa.
Þeir gagnrýna jafnframt skort á samningsvilja í yfirstandandi kjaradeilum og beina þeirri áskorun til lífeyrissjóða, sem eru meðal eigenda Icelandair, að láta sig málið varða.
Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu Flugvirkjafélags Íslands (FVFÍ), Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) og Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ), sem er í raun opið bréf til lífeyrissjóðanna.
„Núverandi staða vekur áhyggjur sem ná langt út fyrir hefðbundnar kjaradeilur,“ segir í yfirlýsingunni.
Segja samningsvilja skorta
Kjarasamningar flugmanna og flugfreyja og -þjóna hafa verið lausir frá hausti 2025 og samningar flugvirkja frá síðustu áramótum.
Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, sagði í samtali við mbl.is í morgun að félagið skynjaði engan samningsvilja af hálfu Icelandair og að verkfallsaðgerðir væru ekki útilokaðar.
Stéttarfélögin segja viðræður hafa gengið hægt og að lítið hafi þokast í átt að samkomulagi.
„Það sem helst stendur út af snýst þó ekki fyrst og fremst um laun,“ segir í yfirlýsingunni.
Bent er á að deilt sé um vaktafyrirkomulag flugvirkja, en í viðræðum við flugmenn hafi Icelandair lagt áherslu á heimildir til að leigja erlendar áhafnir og aukinn sveigjanleika í hvíldarreglum.
„Þegar á reynir er Icelandair því ekki að verjast kostnaðarhækkunum, heldur að sækja sér hagræðingu á kostnað vinnuaðstæðna og starfsöryggis,“ segja félögin.
Kjaradeila flugvirkja er enn í hnút og enginn nýr fundur hefur verið boðaður hjá ríkissáttasemjara. Flugmenn hafa jafnframt samþykkt ótímabundnar verkfallsaðgerðir frá 20. nóvember sem takmarkast við leiguflug fyrir þriðja aðila.
Óttast afleiðingar uppbyggingar erlendis
Stéttarfélögin lýsa sérstökum áhyggjum af starfsemi Icelandair erlendis, meðal annars í Litháen og á Möltu.
Þau benda á að Icelandair hafi stofnað dótturfélag í Litháen sem sinni verkefnum tengdum viðhaldi flugvéla og keypt 49% hlut í Fly Play Europe, sem veiti félaginu aðgang að maltnesku flugrekstrarleyfi.
Kallað er eftir skýrum svörum um hvort þessi uppbygging verði viðbót við starfsemi Icelandair á Íslandi eða hvort störf og verkefni verði flutt úr landi.
„Ef störf og verkefni flytjast úr landi er hætta á að sú þekking veikist hér, með áhrifum á innlenda verðmætasköpun, skatttekjur og iðgjöld til íslenskra lífeyrissjóða.“
Beina áskorun til lífeyrissjóðanna
Stéttarfélögin beina þremur áskorunum til lífeyrissjóða sem eiga hlut í Icelandair. Þau vilja að sjóðirnir kalli eftir skýrri framtíðarsýn um störf á Íslandi, standi vörð um réttindi starfsfólks og beiti sér fyrir raunverulegum samningsvilja.
„Lífeyrissjóðirnir, sem eigendur Icelandair, geta ekki litið fram hjá þessari þróun,“ segir í yfirlýsingunni.
Þá minna félögin á að íslenskt samfélag hafi stutt Icelandair í rekstrarerfiðleikum árið 2020 og starfsfólk tekið á sig verulegar fórnir.
„Spurningin er ekki aðeins hvaða framtíð Icelandair ætlar að byggja sér, heldur hvaða framtíð eigendur þess vilja sjá fyrir íslenska flugstarfsemi,“ segir að lokum í yfirlýsingunni.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗