Mæta þörf fyrir minni íbúðir

Gísli Reynisson, framkvæmdastjóri og einn eigenda Spildu, segir ekkert annað verkefni í Reykjavík vera með jafn ósnortna náttúru. mbl.is/Eyþór

Flestar þeirra 69 íbúða sem Fasteignaþróunarfélagið Spilda í Gufunesi í Reykjavík auglýsti til sölu í júní síðastliðnum eru þegar seldar, eða 59 talsins.

Það kemur dálítið á óvart í ljósi þess að sala nýrra íbúða hefur almennt gengið hægar upp á síðkastið vegna hárra vaxta á markaðnum.

Spurður hverju sé að þakka segir Gísli Reynisson, framkvæmdastjóri og einn eigenda, það vera sambland nokkurra þátta. „Stærð íbúða spilar inn í. Það er þörf á markaðnum fyrir minni íbúðir og við erum að mæta henni. Svo hentar hluti íbúðanna fyrir hlutdeildarlán. Enn fremur eru það gæðin sem við bjóðum upp á, eins og gólfsíðir gluggar, meiri lofthæð, gólfhiti, borðplötur úr steini í eldhúsum, vandaðar innréttingar, bílastæði í kjallara, fallegir stigagangar og gott aðgengi að bílastæðum í borgarlandi. Við skilum öllum íbúðum tilbúnum með gólfefnum, ísskáp og uppþvottavél. Þú getur bara flutt beint inn.“

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅