Tyra Banks hætt með kærastanum

Fyrirsætan Tyra Banks er hætt með kærastanum en ætlar að finna ástina aftur. mbl.is/AFP

Ofurfyrirsætan Tyra Banks er hætt með kærasta sínum, kanadíska viðskiptamanninum Louis Bélenger-Martin. Banks og Bélenger-Martin voru búin að vera saman í mörg ár þegar þau ákváðu að fara hvort í sína áttina. 

America's Next Top Model-stjarnan staðfesti sambandsslitin við bandaríska slúðurmiðilinn TMZ í vikunni. Banks sagðist vera spennt að fara aftur á stefnumót en sagðist ekki ætla á stefnumótaforrit. 

Banks og Bélenger-Martin byrjuðu saman árið 2018 eða 2019 en það er ekki alveg ljóst. Mikil alvara var í sambandi þeirra. Banks flutti meðal annars til Ástralíu með fyrrverandi kærastanum og syni hans.

Tyra Banks er einhleyp.

Tyra Banks er einhleyp. AFP/Christopher Polk/

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅