Óvíst hvaða skref hann tekur eftir andlátið á Tenerife - Við munum gefa honum svigrúm“

Jesús Owono, markvörður FC Andorra, hefur ekki ákveðið hvort hann snúi aftur á knattspyrnuvöllinn eftir hörmulegt atvik sem kostaði Jesús de Miguel, framherja Tenerife, lífið.

Atvikið átti sér stað í leik liðanna í spænsku B-deildinni 2. nóvember. Owono, sem er 25 ára, hljóp út úr marki sínu til að hreinsa langa sendingu en lenti með hnéð í höfði og brjóstkassa De Miguel.

Markvörðurinn fékk rautt spjald en De Miguel lá hreyfingarlaus eftir áreksturinn. Framherjinn, sem var þrítugur, fékk hjartastopp á leiðinni á sjúkrahús. Endurlífgun tókst en hann lést morguninn eftir.

Jesus Owono. Mynd: Andorra

Owono hefur síðan dvalið hjá fjölskyldu sinni og er framtíð hans í fótboltanum óljós. „Ég finn fyrir gríðarlegri sorg vegna fráfalls Jesús. Hugur minn er hjá honum, fjölskyldu hans og öllum sem elskuðu hann,“ sagði Owono í yfirlýsingu.

Carles Manso, þjálfari Andorra, segir félagið ætla að styðja markvörðinn. „Við munum gefa honum svigrúm til að taka sína eigin ákvörðun, hvort og hvenær hann vill snúa aftur.“

Fjársöfnun fyrir fjölskyldu De Miguel hefur skilað rúmlega 178 þúsund pundum. Tenerife hefur jafnframt heitið því að styðja dóttur hans fjárhagslega þar til hún verður átján ára.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅