Þjálfarar SR boðaðir í viðtöl vegna breytinga
Stjórn listskautadeildar Skautafélags Reykjavíkur hyggst breyta samningsfyrirkomulagi þjálfara í hlutastarfi um áramótin og bjóða þeim verktakasamninga.
Þá yrði sami tímataxti greiddur fyrir þjálfun óháð því hvort hún færi fram á virkum dögum, kvöldin eða um helgar.
Þetta kemur fram í tölvupósti til þjálfara sem mbl.is hefur undir höndum. Þar segir að breytingarnar eigi að taka gildi 1. janúar 2027, að því marki sem verktakafyrirkomulag samræmist lögum og raunverulegu eðli starfanna.
Stjórnin vísar til þess að ákvæði kjarasamninga um kvöldvinnu, helgarvinnu, yfirvinnu og útkall geti haft veruleg áhrif á launakostnað félagsins. Hún vilji komast hjá því að hækka æfingagjöld til að mæta þeim kostnaði.
„Þar sem þessi vinnutími er eðlilegur og óhjákvæmilegur hluti af starfsemi okkar telur stjórn félagsins nauðsynlegt að endurskoða núverandi samningsfyrirkomulag,“ segir í póstinum.
Þar er jafnframt tekið fram að verktakar beri almennt sjálfir ábyrgð á reikningagerð, skattaskilum, lífeyrisiðgjöldum og tryggingum. Þeir njóti ekki sjálfkrafa sömu réttinda og launafólk hvað snertir orlof, veikindi og uppsagnir. Þjálfurum verður boðið í einstaklingsviðtöl við stjórnina um fyrirkomulagið.
Tölvupóstur stjórnarinnar í heild:
Kæru þjálfarar,
Stjórn Skautafélags Reykjavíkur, listskautadeild, vill upplýsa ykkur um fyrirhugaðar breytingar á samnings- og greiðslufyrirkomulagi þjálfara sem starfa í hlutastarfi hjá félaginu.
Stefnt er að því að breytingarnar taki gildi 1. janúar 2027.
Hvers vegna er verið að gera þessar breytingar?
Skautafélag Reykjavíkur er íþróttafélag sem byggir rekstur þjálfunarstarfsins á æfingagjöldum iðkenda. Okkar meginmarkmið er að bjóða upp á metnaðarfullt og gott íþróttastarf á eins aðgengilegu verði og kostur er. Ólíkt hefðbundnum fyrirtækjum hefur félagið takmarkað svigrúm til að mæta auknum rekstrarkostnaði með hækkun tekna. Það er okkur mikið keppikefli að þurfa ekki að hækka æfingagjöld iðkenda til að standa undir auknum launakostnaði, enda gæti það haft neikvæð áhrif á aðgengi barna og ungmenna að íþróttinni.
Starfsemi félagsins er jafnframt þess eðlis að stór hluti þjálfunar fer fram utan hefðbundins dagvinnutíma, einkum síðdegis, á kvöldin og um helgar, meðal annars á sunnudögum. Við yfirferð á gildandi kjarasamningum hefur komið í ljós að ákvæði um kvöldvinnu, helgarvinnu, yfirvinnu og útkall geta haft veruleg áhrif á umfang launakostnaðar félagsins. Þar sem þessi vinnutími er eðlilegur og óhjákvæmilegur hluti af starfsemi okkar telur stjórn félagsins nauðsynlegt að endurskoða núverandi samningsfyrirkomulag.
Markmið okkar er að tryggja áframhaldandi öflugt þjálfunarstarf án þess að leggja auknar fjárhagslegar byrðar á iðkendur og fjölskyldur þeirra.
Hverju felast fyrirhugaðar breytingar í?
Stefnt er að því að þjálfarar sem sinna hlutastörfum hjá félaginu geti frá 1. janúar 2027 starfað samkvæmt verktakasamningum, að því marki sem slíkt samræmist lögum og raunverulegu eðli starfanna. Í nýju fyrirkomulagi er gert ráð fyrir:
Samræmdur tímataxti fyrir þjálfun, óháð tíma dags eða vikudegi.
Sami umsamdi tímataxti hvort sem þjálfun fer fram á virkum dögum, á kvöldin eða á sunnudögum.
Skýrum samningum um umfang þjálfunarverkefna og greiðslur.
Einfaldari og fyrirsjáanlegri kostnaðaráætlun fyrir félagið.
Hvað þýðir það að starfa sem verktaki?
Sjálfstæðir verktakar taka að sér skilgreind verkefni samkvæmt samningi og fá greitt fyrir þau samkvæmt umsömdum kjörum. Verktakafyrirkomulag getur meðal annars boðið upp á meira sjálfstæði, sveigjanleika og möguleika á að sinna verkefnum fyrir fleiri en einn aðila. Á móti kemur að verktakar bera almennt sjálfir ábyrgð á reikningagerð, skattaskilum, lífeyrisiðgjöldum og viðeigandi tryggingum. Þá njóta þeir ekki sjálfkrafa sömu réttinda og launafólk varðandi orlof, veikindi og uppsagnir.
Næsta skref:
Þér verður boðið til einstaklingsviðtals við stjórnina þar sem farið verður ítarlega yfir verktakasamning þinn og þau atriði sem honum tengjast.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗