Ferðamaður lét ekki kuldann stoppa sig - Sjáðu myndbandið

Myndband af ferðamanni í Fellsfjöru er að vekja mikla athygli á samfélagsmiðlum.

Ástæðan er að konan er aðeins klædd í bikiní í kuldanum og dansar í fjörunni. Vinsæla Instagram-síðan „Influencers in the wild“, sem er gullnáma fyrir skemmtilega afþreyingu, birti myndbandið í gær og hefur það fengið rúmlega 400 þúsund áhorf.

Í myndbandinu má sjá konuna í Fellsfjöru, sem túristarnir þekkja sem „Diamond Beach“, við Breiðamerkursand.

Fjöldi manns hefur skrifað við myndbandið.

„Ég vinn sem leiðsögumaður á Íslandi, það sem ég hef séð hérna,“ sagði einn netverji kíminn.

„Hún er örugglega að þéna meira að gera þetta en ef hún ynni venjulegt starf,“ sagði annar.

Ein kona sagði okkur lifa á heimskulegasta tíma frá upphafi. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅