Tap Kaldvíkur nam 2,6 milljörðum
Vidar Aspehaug forstjóri Kaldvíkur fór yfir þróun mála og tölur í árshlutauppgjöri Kaldvíkur á kynningu fyrir fjárfesta í morgun. Ljósmynd/Skjáskot úr kynningu Kaldvíkur
Uppsafnað rekstrartap sjókvíaeldisfyrirtækisins Kaldvíkur fyrstu níu mánuði ársins er næstum tvöföld upphæð sama tímabils í fyrra.
Í árshlutauppgjöri fyrirtækisins sem birt var í morgun má sjá að tap félagsins á þriðja ársfjórðungi nam tæplega 18,7 milljónum evra, eða sem svarar til tæplega 2,6 milljarða króna.
Tapið eykst um 69 prósent miðað við sama tímabil í fyrra, en þá var það tæplega 11,1 milljón evra, eða sem svarar til 1,5 milljarða króna.
Fyrstu níu mánuði ársins er tapið 79,8 prósentum meira en á sama tíma 2025, fór úr tæplega 33,9 milljónum evra, eða 4,6 milljónum króna, í rúmar 60,9 milljónir evra, eða sem svarar til 8,3 milljarða króna.
Brot úr myndskeiði í fjárfestakynningu Kaldvíkur þar sem sjá mátti marglyttur í Reyðarfirði. Skjáskot/Kaldvík
Tekjur fyrirtækisins hafa hins vegar aukist umtalsvert á milli ára og voru 26,1 milljón evra á þriðja ársfjórðungi, samanborið við 9,9 milljónir evra árið áður.
Í krónum talið eru það tæpir 3,6 milljarðar á móti tæplega 1,4 milljörðum árið áður.
Á sama tíma þrefaldaðist kostnaður fyrirtækisins milli ára á ársfjórðungnum og nam 15,3 milljónum evra, eða tæplega 2,1 milljarði króna.
Í kynningu á uppgjörinu sem streymt var í morgun fóru Vidar Aspehaug forstjóri félagsins og Þórunn Ragnarsdóttir fjármálastjóri yfir uppgjörið og umtalsverðar áskoranir sem takast hefur þurft á við í rekstrinum það sem af er ári.
Vidar byrjaði á að upplýsa um að á þriðja ársfjórðungi hafi verið slátrað 4.483 tonnum og af því magni hafi 75,8 prósent verið úrvalsafurð, sem sé hækkun frá fyrra ári þegar hlutfallið hafi verið 65,3 prósent. Þá var slátrað 1.545 tonnum.
Þá hafi á fjórðungnum verið veitt heimild til 10 þúsund tonna eldis í Seyðisfirði, en þar með séu heildarheimildir félagsins komnar í 53.800 tonn.
Þá fór hann yfir áfall sem reksturinn varð fyrir vegna ágangs marglytta í september og fram í októberbyrjun þegar atburðurinn hafi verið genginn yfir.
„Strax var gripið til mótvægisaðgerða sem meðal annars fólu í sér snemmbæra slátrun á fiski í hætti, samdrátt í fóðrun og nákvæmu eftirliti með heilbrigði fiskanna,“ segir hann.
Markaðurinn hafi verið upplýstur um þróun málsins með tilkynningum til kauphallar.
Þegar upp var staðið hafði viðburðurinn aukið afföll 2025-árgangsins í eldinu í Reyðarfirði um 11,5 prósentustig, en áhrifin koma að stærstum hluta fram í sláturmagni ársins 2027.
Sjá má alla kynningu Kaldvíkur í glugganum hér fyrir neðan:
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

