„Veit að Rússarnir vilja mig ekki“
Kallas segir það ekki Rússa að ákveða hver komi fram fyrir hönd Evrópu og varar við því að ganga í gildrur þeirra í viðræðunum. AFP
„Ég veit að Rússarnir vilja mig ekki,“ segir Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, sem telur sig eðlilegan kost sem fulltrúa sambandsins í fyrirhuguðum friðarviðræðum um Úkraínu.
Hún segir það ekki Rússa að ákveða hver komi fram fyrir hönd Evrópu og varar við því að ganga í gildrur þeirra í viðræðunum.
Ummælin lét Kallas falla á leiðtogafundi ESB í Dyflinni í dag, þar sem leiðtogarnir ræða meðal annars hver eigi að koma fram fyrir hönd Evrópu við samningaborðið.
„Ég veit að Rússarnir vilja mig ekki, en höfum við eitthvað um það að segja hver er fulltrúi Rússlands? Nei, það höfum við ekki,“ sagði Kallas.
Hún benti á að leiðtogar ESB hefðu valið hana í embætti utanríkismálastjóra og því væri eðlilegt að hún yrði fyrir valinu. Jafnframt hvatti hún Evrópumenn til að festast ekki í umræðum um fulltrúa heldur einbeita sér að því hverju þeir vildu ná fram.
„Þeir vilja engan sterkan viðsemjanda hinum megin við borðið því þeir vilja knýja fram ítrustu kröfur sínar,“ sagði hún um afstöðu Rússa.
Peskov sagði Rússa reiðubúna til viðræðna við Evrópumenn, hefðu þeir vilja til þess og fulltrúa með umboð til að ræða fyrir þeirra hönd. AFP
Rússar setja fyrirvara við þátttöku Evrópu
Evrópskir leiðtogar og rússnesk stjórnvöld deildu í dag um aðkomu Evrópuríkja að friðarviðræðunum. Bandarískir sendifulltrúar sögðu eftir fund með Vladimír Pútín Rússlandsforseta í gær að Evrópa myndi taka þátt í frekari samningaviðræðum. Kremlverjar segja hins vegar enga ákvörðun hafa verið tekna um það.
„Þegar við höfum áttað okkur á raunverulegum fyrirætlunum þeirra og vilja til að leggja sitt af mörkum til friðarferlisins getum við tekið ákvörðun um að fjölga aðilum að viðræðunum,“ sagði Dmítrí Peskov, talsmaður Kremlar, við blaðamenn.
Hann sagði Rússa reiðubúna til viðræðna við Evrópumenn, hefðu þeir vilja til þess og fulltrúa með umboð til að ræða fyrir þeirra hönd.
Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, vísaði ummælum Peskovs á bug og sagði þau hluta af „leik“ Kremlar. Enginn vafi léki lengur á þátttöku Evrópu.
Evrópuríki hafa lengi þrýst á um sæti við samningaborðið í tilraunum Bandaríkjamanna til að binda enda á stríðið. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, sagði sjálfsagt að Evrópa tæki þátt, bæði til að gæta eigin hagsmuna og styðja Úkraínu.
Merz, kanslari Þýskalands, vísaði ummælum Peskovs á bug og sagði þau hluta af „leik“ Kremlar. Enginn vafi léki lengur á þátttöku Evrópu. AFP
Vopnahlé verði í forgangi
Kallas varaði við því að ganga í gildrur Rússa með því að hefja víðtækar viðræður um öryggismál í Evrópu í stað þess að einbeita sér að vopnahléi.
„Fyrst þurfum við vopnahlé,“ sagði hún.
Með því að ræða kröfur Rússa um fyrirkomulag öryggismála væri athyglinni beint frá því að ekkert vopnahlé væri í gildi.
Merz hafnaði einnig kröfum Rússa um að víðtækara fyrirkomulag öryggismála í Evrópu yrði rætt samhliða friðarviðræðunum. Að sögn AFP virðast Kremlverjar vilja endurvekja kröfur um að umsvif Atlantshafsbandalagsins verði dregin saman.
„Rússar vilja ræða fyrirkomulag öryggismála í Evrópu. Við þurfum ekki að ræða það, það er þegar til staðar,“ sagði Merz.
Jared Kushner, sendifulltrúi Bandaríkjanna og tengdasonur Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, sagði hins vegar að þátttaka Evrópu myndi gera kleift að ræða víðtækara fyrirkomulag öryggismála álfunnar að stríðinu loknu.
Þessi áhersla hefur vakið ugg meðal evrópskra bandamanna Bandaríkjanna, sem hafa lengi hafnað óskum Kremlar um grundvallarbreytingar á því fyrirkomulagi.
Vilja niðurstöðu um fulltrúa innan tveggja vikna
Micheál Martin, forsætisráðherra Írlands, sagði að ákveða þyrfti á næstu einni til tveimur vikum hver kæmi fram fyrir hönd Evrópu.
Fulltrúar Bretlands, Frakklands, Þýskalands og ESB voru á hliðarlínunni í tengslum við viðræður í Abú Dabí í þessari viku.
Merz sagði sjálfgefið að Þýskaland ætti aðild að hverri þeirri sendinefnd sem kæmi fram fyrir hönd Evrópu. Hann teldi ekki þörf á umræðu um stofnanalegt fyrirkomulag að svo stöddu.
Aðrir leiðtogar hafa lagt áherslu á að fylgt verði sáttmálum ESB og æðstu embættismenn sambandsins komi fram fyrir þess hönd.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

