Breki Karlsson: Bílainnflytjendur lækka bílana um milljón – hví lækkar ekki verð á matvörumarkaði?

Matvælaverð hér á landi hefur ekki lækkað til samræmis við þá styrkingu sem orðið hefur á gengi íslensku krónunnar á þessu ári og greinilega er fákeppni á þessum markaði. Innlend matvara hefur svo leitt hækkanir, sérstaklega á þeim sviðum sem einokun ríkir. Þá eru dæmi um að framleiðendur og innflytjendur hafi hreinlega neitað að eiga viðskipti við nýja aðila á smásölumarkaði. Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:

Það er í mörg horn að líta í þínu starfi. Það komu fréttir um matvörumarkaðinn í síðustu viku, ef ég man rétt, sem sýndu fram á að innflutt matvara hefði lækkað eilítið á sama tíma og innlend matvara er svona leiðandi í hækkunum. Þið fylgist vel með matvörumarkaðnum. Eru það innlendu framleiðendurnir sem eru vondu gæjarnir?

„Það er erfitt að vera með svona palladóma um vonda og góða gæja en eigum við að segja að það séu veruleg tækifæri til að gera betur? Við sjáum það að innlendur matur er að leiða verðhækkanir í vísitölu neysluverðs og þetta er akkúrat á því sviði sem er einokun, í mjólkinni og unnu kjötvörunum. Og svo ef við tökum innflutta matinn þá hefur hann ekki verið heldur í takt við styrkingu krónunnar.“

Krónan hefur nefnilega styrkst mikið eins og eðlilegt er þegar að vöxtum er haldið svona háum.

„Einmitt, og krónan frá áramótum hefur styrkst um 7-8% en við sjáum það ekki í matvöruverði, því miður, á innfluttum mat. Auðvitað er einhver kostnaður sem fellur til innanlands. við alla matvöru og svoleiðis, en við teljum alveg að það sé svigrúm til 4-5% lækkunar matvælaverðs, innflutts matar.“

Þannig að það er verið að slá ryki í augu neytenda þegar að verslanakeðjurnar koma og sem svo: Nú ætlum við að lækka eða frysta verð á svo og svo mörgum vörutegundum. Þær eru ekki að færa neytendum gengishækkunina.

„Við getum orðað það sem svo að það sé ódýrt að frysta verð þegar gengið hefur styrkst verulega. Og eins og þú segir, fyrirtækin ættu að vera að lækka verð en ekki vera að hækka. Ég heyrði nú bara um daginn, held ég í fyrradag, auglýsingu um bílafyrirtæki sem auglýsti milljón króna lækkun á bílunum sínum vegna gengisstyrkingar krónunnar. Ég á eftir að heyra slíkar auglýsingar frá matvörukeðjunum um að það séu verulegar lækkanir á matvöruverði vegna gengisstyrkingarinnar.“

Nú fékk Samkeppniseftirlitið sérstaka fjárveitingu í sumar, beinlínis til þess að fylgjast með matvöru- og eldsneytismarkaði.

„Já, til þess að fylgjast með eldsneytismarkaði og þá náttúrlega þetta hringl með, með skattana sem er náttúrlega, að okkar mati er það mjög slæmt að hringla svona, taka af skatt tímabundið til þess að setja hann á aftur síðar. Fyrir það fyrsta þá er þetta náttúrlega bara tímabundinn plástur. Og í öðru lagi þá verður þetta þess valdandi að fólk missir allt verðskyn og nógu sveiflast nú bensínverðið samt að fólk þurfi ekki að fylgjast með þessu líka. En ef ég man rétt þá var nú niðurstaðan sú að fyrirtækin hefðu lækkað svona nokkurn veginn eins og efni stóðu til þó að það eigi eftir að, ég veit að Samkeppniseftirlitið er að vinna núna heildarmat á þessum markaði.“

En ef við höldum okkur aðeins við matvörumarkaðinn, hvað veldur? Það, þetta ástand sem þú ert að lýsa, það segir okkur að það ríki ekki raunveruleg samkeppni á þessum markaði. Er það ekki rétt ályktun?

„Það ríkir í það minnsta fákeppni og á flestum mörkuðum og það sem er áhyggjuefni er að það er líka eins og það sé svona viðurkennt að fyrirtæki leggi steina í götu samkeppni. Jafnvel og við sjáum það til dæmis með opnun Kalda bars á sínum tíma að þeir bara opnuðu barinn af því að þeir komu ekki bjórnum sínum á markað.

Við sjáum það að þegar Prís opnaði þá talaði framkvæmdastjóri Prís, um það að alls staðar þar sem þau sneru sér væru steinar í götu þeirra og þetta er alvarlegt og þetta er eitthvað sem við þurfum að taka verulega á bara sem samfélag að ja, einn hornsteinninn í okkar hagkerfi er frjáls samkeppni. Og þeir sem leggja steina í götu, samkeppni er að leggja steina í götu neytenda og það er bara hrein og bein aðför.

Og þetta er eitthvað sem bæði stjórnendur fyrirtækja og eigendur fyrirtækja þurfa að huga að, að á endanum er, ef við þurrkum út samkeppni gæti orðið smávægileg arðsemi til mjög skamms tíma fyrir fyrirtækin en á endanum þá skemmir það fyrir okkur öllum. Þannig að við þurfum bara öll að gæta okkar. Við þurfum að, við höfum, hjá Neytendasamtökunum, brýnt bæði fyrir stjórnendum fyrirtækjanna en líka eigendum þeirra að gæta að þessu.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅