Liverpool vill kaupa varnarmanninn sem Brighton keypti í sumar

Liverpool hefur áhuga á að fá Luka Vuskovic, 19 ára varnarmann Brighton, til félagsins næsta sumar. Þetta kemur fram hjá þýska félagaskiptablaðamanninum Florian Plettenberg. Hann var keyptur til félagsins frá Tottenham í sumar.

Vuskovic er króatískur varnarmaður sem hefur vakið athygli fyrir frammistöðu sína í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool er sagt hafa sett hann á óskalista sinn fyrir næsta sumar og fylgist grannt með þróun hans.

Brighton ætlar hins vegar ekki að láta leikmanninn fara fyrir lítið. Samkvæmt Plettenberg metur félagið Vuskovic á um 80 milljónir punda, jafnvirði rúmlega 14 milljarða íslenskra króna.

Slík upphæð myndi gera hann að afar dýrum varnarmanni þrátt fyrir ungan aldur. Ekki liggur fyrir hvort Liverpool sé tilbúið að greiða þá upphæð eða hvort félagið muni leggja fram formlegt tilboð næsta sumar.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅