Tiger gefur ekki upp vonina

Tiger Woods útilokar ekki endurkomu.

Tiger Woods útilokar ekki endurkomu. AFP/Mike Mulholland

Tiger Woods hefur aukið æfingaálagið þar sem hann stefnir að endurkomu í keppnisgolf.

Hinn fimmtugi Woods hefur ekki staðfest hvort hann taki þátt í Hero World Challenge í næsta mánuði.

„Mér líður betur, það er enginn vafi á því. Ég hef æft töluvert,“ sagði Woods í viðtali við SiriusXM PGA Tour Radio.

Woods, sem hefur fimmtán sinnum sigrað á risamóti, verður viðstaddur mótið í desember sem gestgjafi þess, hvort sem hann keppir eða ekki.

Woods sleit hásin í mars 2025 og gekkst undir sjöundu bakaðgerð sína í október sama ár. Bataferlið varð enn flóknara eftir bílslys í mars á þessu ári.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅