Sigurður Gunnar ráðinn framkvæmdastjóri

Sigurður Gunnar Gissurarson.

Sigurður Gunnar Gissurarson. Ljósmynd/Advania/Baldur Kristjánsson

Sigurður Gunnar Gissurarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri viðskiptalausna Advania. Hann kemur frá Emblu Medical, áður Össuri, þar sem hann hefur gegnt stjórnunarstörfum síðastliðin 20 ár.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Advania. Sigurður hefur sinnt stjórnunarstörfum á sviði sölu, markaðsmála, vörustýringar og rekstrar hjá Emblu Medical, bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum.

Áður starfaði hann hjá Tæknivali, fyrst sem viðskiptastjóri og síðar sem forstöðumaður tækniþjónustu. Þar leiddi hann teymi sem þjónustuðu fyrirtæki á sviði upplýsingatækni og fjarskipta.

Sigurður er með BSc-gráðu í tæknifræði og meistaragráðu í alþjóðlegri stjórnun frá Syddansk Universitet í Danmörku.

Sjá tækifæri í nýtingu gervigreindar

Hildur Einarsdóttir, forstjóri Advania á Íslandi, segir í tilkynningunni að mikil tækifæri felist fyrir íslensk fyrirtæki og stofnanir í aukinni nýtingu gervigreindar í rekstri og lykilkerfum þeirra. Reynsla Sigurðar og viðskiptaleg sýn muni hjálpa viðskiptavinum félagsins að nýta þau tækifæri.

„Viðskiptalausnir byggja á einstaklega öflugu og framsæknu teymi sem vinnur náið með okkar viðskiptavinum að lausnum sem henta þeirra viðskiptaumhverfi og þörfum,“ segir Hildur.

Auk Hildar og Sigurðar sitja í framkvæmdastjórn Advania þau Auður Inga Einarsdóttir, framkvæmdastjóri innviðalausna, Erna Björk Sigurgeirsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála, mannauðs og samskipta, Hafsteinn Guðmundsson, framkvæmdastjóri rekstrarlausna, og Sigrún Ámundadóttir, framkvæmdastjóri hugbúnaðarlausna.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅