Tiger gefur ekki upp vonina
Tiger Woods hefur aukið æfingaálagið þar sem hann stefnir að endurkomu í keppnisgolf.
Hinn fimmtugi Woods hefur ekki staðfest hvort hann taki þátt í Hero World Challenge í næsta mánuði.
„Mér líður betur, það er enginn vafi á því. Ég hef æft töluvert,“ sagði Woods í viðtali við SiriusXM PGA Tour Radio.
Woods, sem hefur fimmtán sinnum sigrað á risamóti, verður viðstaddur mótið í desember sem gestgjafi þess, hvort sem hann keppir eða ekki.
Woods sleit hásin í mars 2025 og gekkst undir sjöundu bakaðgerð sína í október sama ár. Bataferlið varð enn flóknara eftir bílslys í mars á þessu ári.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗