Deila um fóðurgjafir við Tjörnina
Fram kemur að við Reykjavíkurtjörn hafi Dýravaktin talið nauðsynlegt að gefa allt að 40 kíló af fóðri á dag. Til samanburðar hafi Dýraþjónusta Reykjavíkur gefið um þrjú til tíu kíló ákveðna daga í mestu frosthörkum. Karítas Sveina Guðjónsdóttir
Sérfræðingar fjögurra sveitarfélaga telja ekki forsendur til að veita fjárhagslegan stuðning við fóðurgjafir Dýravaktarinnar og vilja að samtökin dragi úr þeim. Dýravaktin segir ekki sýnt fram á að starf hennar hafi valdið skaða og kallar eftir staðbundnu mati á fæðuþörf fuglanna.
Minnisblað sérfræðinganna var kynnt í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur 11. nóvember. Að því standa sérfræðingar Reykjavíkurborgar, Hafnarfjarðarbæjar, Kópavogsbæjar og Seltjarnarnesbæjar.
Í yfirlýsingu sem Ingiveig Gunnarsdóttir, formaður Dýravaktarinnar, ritar fyrir hönd samtakanna er gagnrýnt að almennar fullyrðingar um möguleg neikvæð áhrif fuglafóðrunar séu látnar réttlæta minni stuðning án mats á aðstæðum.
Segja fóðrun hafa haldið áfram þrátt fyrir tilmæli
Í minnisblaðinu segir að fóðurgjafir hafi reynst umfangsmeiri en sveitarfélögunum var kynnt í upphafi. Þær hafi farið fram allt að fimm mánuði ársins, jafnvel oft á dag, á að minnsta kosti tólf stöðum frá Seltjarnarnesi út á Reykjanes.
Við Reykjavíkurtjörn hafi Dýravaktin talið nauðsynlegt að gefa allt að 40 kíló af fóðri á dag. Dýraþjónusta Reykjavíkur hafi til samanburðar gefið um þrjú til tíu kíló ákveðna daga í mestu frosthörkum.
Samkvæmt minnisblaðinu óskaði borgin eftir minni fóðurgjöfum og tilkynnti samtökunum að Dýraþjónustan myndi annast fóðrun við Tjörnina þegar þörf væri á. Dýravaktin hafi þó ekki dregið úr gjöfunum og haldið daglegri fóðrun áfram, einnig þegar Dýraþjónustan gaf fuglunum.
Sérfræðingarnir vara við að umfangsmikil og langvarandi fóðrun geti stuðlað að smitdreifingu, breytt atferli fugla og rýrt vatnsgæði. Fóðrun eigi fyrst og fremst að vera tímabundið úrræði við sérstakar aðstæður.
Kílóafjöldinn segi ekki alla söguna
Dýravaktin telur samanburð á fóðurmagni ófullnægjandi án upplýsinga um fuglafjölda, tegundasamsetningu, fóðurgerð og aðgang að náttúrulegri fæðu.
Samtökin segjast gefa að jafnaði um 25–40 kíló á dag við Reykjavíkurtjörn þegar aðstæður kalli á slíkt umfang. Sjálfboðaliðar telji fugla, meti veður og fæðuaðgengi og fylgist með viðbrögðum þeirra.
„Dagleg vetrarfóðrun þýðir ekki óbreytt magn óháð aðstæðum. Gjafirnar eru aðlagaðar hverju sinni,“ segir í yfirlýsingunni.
Þar kemur jafnframt fram að samtökin gefi aðallega íslenskt bygg og leggi fóðrið á bakka. Samkvæmt athugunum sjálfboðaliða sé það étið jafnóðum.
Vísa til ráðgjafar um smithættu
Dýravaktin segist taka smithættu alvarlega og hafa leitað ráðgjafar hjá innlendum fuglafræðingum, Matvælastofnun og bresku fuglaverndarsamtökunum WWT.
Í yfirlýsingunni er vísað til tölvupósts frá dýralækni Matvælastofnunar veturinn 2025. Að sögn Dýravaktarinnar var þar varað við smithættu vegna þéttleika fugla og mengunar fóðurs af driti. Jafnframt hafi komið fram að stofnunin mælti ekki með að hætta fóðrun fugla sem þegar hefðu verið fóðraðir þann vetur. Breytingar gætu valdið streitu og tilfærslu fugla sem stuðlaði að smitdreifingu.
Samtökin telja að meta þurfi áhættu vegna smits og fæðuskorts saman. Þau segjast vilja þróa skýrt verklag um fóður, magn, hreinlæti og vöktun.
Benda á langa sögu vetursetu og mengunar
Dýravaktin bendir á að veturseta andfugla og fóðrun við Tjörnina eigi sér um aldarlanga sögu. Sjálfboðastarfið sem samtökin byggi á hafi hafist um veturinn 2022 en þau hafi verið stofnuð formlega í janúar 2025. Meta þurfi áhrif starfsins með sambærilegum talningum og skýru rannsóknartímabili.
Samtökin taka undir að rannsaka og takmarka þurfi næringarefnaálag frá fóðri og driti. Því megi hins vegar ekki rugla saman við mengun af PFOS og öðrum þrávirkum efnum.
Í meðfylgjandi grein Ingiveigar um sögu og lífríki Tjarnarinnar er kallað eftir langtímastefnu sem taki til vatnsgæða, búsvæða, fæðu og aðstoðar við veika og slasaða fugla.
Segjast þurfa að lágmarki fimm milljónir í fóður
Samkvæmt yfirlýsingu Dýravaktarinnar hafa Hafnarfjarðarbær og Kópavogsbær veitt samtökunum samtals 300 þúsund krónur vegna fyrri hluta ársins 2026. Enginn styrkur hafi borist frá Reykjavíkurborg á árinu.
Samtökin áætla að að lágmarki fimm milljónir króna þurfi til fóðurkaupa vegna fimm til sex mánaða vetrarstarfs á um fjórtán gjafstöðum. Framlög einstaklinga og fyrirtækja séu því forsenda starfsins.
Báðir aðilar vilja samstarf
Umhverfis- og skipulagsráð tekur undir áhyggjur sérfræðinganna af óæskilegri fóðrun. Í bókun þess segir að mikil mengun sé þegar í Tjörninni og aukið álag vegna offóðrunar muni stefna lífríki hennar og búsvæðum fugla í hættu.
Ráðið leggur jafnframt áherslu á samstarf við Dýravaktina og sjálfboðaliða, með það að markmiði að villtir fuglar í Reykjavík séu aðeins fóðraðir þegar þörf sé á.
Dýravaktin fagnar samstarfsviljanum og segist reiðubúin til samstarfs sem byggist á faglegu mati, gagnkvæmu trausti og velferð fuglanna.
„Dýravaktin mun ekki taka þátt í fyrirkomulagi sem við teljum skilja fugla eftir án nægrar fæðu,“ segir í yfirlýsingunni.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗