Skaut fyrrverandi eiginkonu átta sinnum í höfuðið

Manninum er gefið að sök að hafa skotið fyrrverandi eiginkonu sína átta sinnum í höfuðið í Brønshøj í fyrrasumar. Hann neitar sök og telur sig hafa skotið „djöful“. Ljósmynd/Wikipedia.org/ Thomas Hindsgaul

Sérstakt mál er nú rekið fyrir Héraðsdómi Fredriksberg í Danmörku þar sem 63 ára gamall maður er ákærður fyrir að hafa skotið fyrrverandi eiginkonu sína átta sinnum í höfuðið í Brønshøj í fyrrasumar og með því myrt hana.

Ákærði neitar hins vegar sök alfarið og sat við sinn keip í margra klukkustunda skýrslugjöf sinni við upphaf aðalmeðferðar fyrir dómstólnum í gær þar sem hann útskýrði meðal annars að hann hefði aldrei sætt sig fyllilega við að eiginkona hans hafi farið frá honum fyrir nokkrum árum.

„Þessi dagur var ekki venjulegur,“ útskýrði ákærði fyrir dómendum og saksóknara í gær, „ég ætlaði að segja henni að koma aftur til mín, ellegar skyti ég mig,“ hélt hann áfram. Í stað þess að standa við það beindi hann vopninu að eiginkonunni fyrrverandi og tæmdi skothylkið.

„Útlit hennar breyttist“

Ákærði neitar sök um manndráp sem honum er borið á brýn í ákæru, en viðurkennir að hafa ítrekað leitað konuna uppi þrátt fyrir nálgunarbann sem honum var úrskurðað árið 2022, en hann er ákærður fyrir manndráp, brot gegn nálgunarbanni og ólöglegan vopnaburð.

Fljótlega varð ljóst að ákærði gengur ekki heill til skógar. Útskýrði hann fyrir héraðsdómi að í raun hefði það ekki verið eiginkonan fyrrverandi sem hann myrti heldur djöfull. „Útlit hennar breyttist. Ég hélt að hún væri djöfull, snákur kom út úr munni hennar. Ég varð hræddur,“ sagði ákærði í vitnastúkunni og greip um höfuð sér.

Viðurkenndi hann að hafa tekið í gikkinn, en þeim saksóknara ber ekki saman um hve oft það hefði verið. Kveðst hann hafa skotið einu eða tveimur skotum á meðan lögregluskýrslur segja manninn hafa skotið minnst tíu skotum. Tólf mínútum eftir ódæðið gaf hann sig fram á lögreglustöðinni í Bellahøj, skammt frá vettvangi brotsins.

Reyndi 136 sinnum að ná sambandi

Fyrir dómi kom fram að síðasta árið fyrir víg eiginkonunnar hefði ákærði hringt 807 sinnum í konuna á 68 daga tímabili sem varð til þess að hún lokaði á númer hans. Vikuna fyrir ódæðið fjölgaði símtölunum verulega og daginn áður hafði ákærði, samkvæmt rannsóknargögnum lögreglu, reynt að ná sambandi við brotaþola 136 sinnum og 30 sinnum daginn sem hann myrti konu sína fyrrverandi.

Við rannsókn málsins kom það einnig upp úr kafinu að ákærði hafði gert fjölda leita á lýðnetinu áður en hann myrti konuna. Hafði hann þar meðal annars kynnt sér viðurlög við manndrápi samkvæmt dönskum hegningarlögum og meðal annars spurt spurninganna „geta raddirnar sem sjúklingur með geðklofa heyrir fengið hann til að drepa?“ og „getur sjúklingur í geðrofi snúið aftur til eðlilegs ástands?“

„Aldrei nokkurn tímann“

Fyrir rétti í gær hékk maðurinn á því eins og hundur á roði að honum hefði aldrei komið til hugar að myrða eiginkonuna fyrrverandi. „Aldrei nokkurn tímann,“ sagði hann lágt í vitnastúkunni.

Ákærði hefur gengist undir geðrannsókn sem leiddi í ljós að hann var meðvitaður um gjörðir sínar á verknaðarstundu. Er hann því talinn sakhæfur og fær um að afplána hefðbundna fangelsisrefsingu.

Búist er við dómsuppkvaðningu í málinu í desember.

DR

B.T.

Ekstra Bladet (krefst áskriftar)

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅