Meira en 20 klukkustundir
Bilunin hjá Microsoft er meðal þeirra allra umfangsmestu og lengstu sem sést hafa meðal stóru tæknifyrirtækjanna. AFP/Idrees Mohammed
Tæknibilunin hjá Microsoft hefur nú varað í yfir 20 klukkustundir, en fyrir þjónusturof af þessari stærðargráðu þykir það mjög langur tími.
Notendur Outlook-póstþjónustunnar hafa orðið varir við að hluti þjónustunnar er að einhverju leyti farinn að virka, en enn er þó langt í land með að full virkni sé komin á kerfin.
Samkvæmt nýjustu upplýsingum frá Microsoft þá „miðar áfram við að koma þjónustu í eðlilegt horf á þeim svæðum sem urðu fyrir truflunum. Nú sjást batamerki víða í Norður-Ameríku og ástandið heldur áfram að batna víða í Evrópu.“
Þá segist fyrirtækið einnig sjá jákvæð merki í Asíu og á Kyrrahafssvæðinu. Tekur fyrirtækið fram að notendur geti þó áfram búist við takmörkuðum aðgangi og vandamálum, meðal annars seinkun á að póstur komist til skila.
Af hverju tekur þetta svona langan tíma?
Ein helsta spurningin sem blasir nú við er af hverju það tekur svona langan tíma að koma þjónustunni aftur í lag, en líkt og áður segir er mjög óvanalegt að bilanir hjá stórfyrirtækjum eins og Microsoft taki svona langan tíma.
Microsoft hefur haldið að sér höndum við að upplýsa um orsakir bilunarinnar en hefur gefið í skyn að ekki hafi verið um árás að ræða. Sagði Microsoft nú eftir hádegi að gefin yrði út ítarleg skýrsla um bilunina, meðal annars um frumorsök (e. root cause) vandans til að koma í veg fyrir sambærilegar bilanir í framtíðinni. Slíkt verði þó ekki gert fyrr en tekist hefur að koma þjónustu að fullu í eðlilegt horf.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗