Faðir ungu flugkonunnar sem fórst í Flórída hlustaði á síðustu orð hennar – „Það var eins og hún væri ein“
Faðir tvítugrar konu sem fórst í hörmulegu flugslysi í Flórída í Bandaríkjunum fyrr í þessum mánuði segir að ýmsar spurningar hafi vaknað þegar hann hlustaði á síðustu samskipti dóttur sinnar við flugumferðarstjórn.
Alls fórust níu manns þegar Learjet 60-einkaþota hrapaði á veg í grennd við West Palm Beach þann 1. nóvember síðastliðinn. Vélin var á leið frá Austin í Texas til Bahamaeyja þegar hún lenti í erfiðum veðurskilyrðum og missti skyndilega hæð.
Meðal þeirra sem fórust var Nathalia Filgueiras, tvítugur aðstoðarflugmaður vélarinnar.
Faðir Nathaliu, Allan Filgueiras, segir það hafa verið afar sársaukafullt að hlusta á upptökuna og hann klórar sér í kollinum yfir því hvers vegna Nathalia og flugstjóri vélarinnar reyndu ekki að fljúga fram hjá óveðrinu.
Sjá einnig: Nú er ljóst hverjir fórust í flugslysinu – Börnin aðeins tveggja og fjögurra ára
Eins og hún væri ein
Allan er sjálfur reyndur flugmaður og ræddi hann málið í viðtali við bandarísku sjónvarpsstöðina ABC News sem birtist í gær.
Í viðtalinu sagðist hann hafa hlustað á upptökur af síðustu samskiptum dóttur sinnar við flugumferðarstjórn. Það hafi verið honum ákaflega þungbært, en jafnframt hafi hann heyrt hversu hugrökk hún var á síðustu augnablikunum.
„Það var eins og hún væri ein að reyna að ná stjórn á flugvél sem ekki var lengur hægt að bjarga,“ segir hann.
Nathalia sá um fjarskiptin við flugumferðarstjórn á meðan flugstjórinn, hinn 55 ára Jeff Gregory, stýrði vélinni.
Samkvæmt upplýsingum bandarísku samgönguöryggisnefndarinnar, NTSB, höfðu flugmennirnir tilkynnt um ísingu á vélinni og talsverða ókyrrð áður en hún missti hæð mjög snögglega.
Hefðu getað forðast óveðrið
Allan segir fjölmörgum spurningum ósvarað um það sem gerðist. Hann veltir sérstaklega fyrir sér hvers vegna flugmennirnir hafi ekki breytt flugleiðinni til að forðast versta veðrið.
Sjá einnig: Reyndur flugstjóri varpar ljósi á hvað gæti hafa farið úrskeiðis
„Þegar maður flýgur þotu hefur maður svo mörg úrræði. Þau höfðu tuttugu mínútur, þrjátíu mínútur. Maður flýgur fram hjá óveðrinu,“ segir hann.
Hann segir dóttur sína hafa verið einstaklega ábyrgan flugmann sem hefði aldrei tekið óþarfa áhættu.
„Hún var ekki einhver glannaflugmaður. Hvers vegna flugu þau þá ekki fram hjá? Hvað varð til þess að þau völdu þessa flugleið? Það eru svo margar spurningar.“
Faðirinn ver jafnframt hæfni dóttur sinnar þrátt fyrir ungan aldur og segir hana hafa búið yfir einstökum hæfileikum til flugs. Bendir hann á að hæfileikar séu ekki bundnir við aldur og hún hafi verið reynslumikil þrátt fyrir að vera ung.
Vill svör til að finna frið
Rannsókn slyssins stendur enn yfir. Athygli hefur meðal annars vakið að hlutar úr stélbúnaði vélarinnar hafi fundist í um sex kílómetra fjarlægð frá slysstað.
Rannsóknarmenn hafa ekki komist að niðurstöðu um hvort stýrisflöturinn hafi losnað og átt þátt í slysinu eða hvort hann hafi brotnað af vegna gríðarlegs álags þegar vélin féll til jarðar á meiri hraða en hún var hönnuð til að þola.
Allan hefur nú leitað til lögmanna sem vilja meðal annars fá að skoða flakið og viðhaldssögu vélarinnar, sem var 22 ára gömul.
Hann segist ekki geta fengið dóttur sína aftur en vonast til þess að rannsóknin leiði í ljós hvað fór úrskeiðis.
„Ég þarf að fá einhver svör til að geta fundið frið,“ segir hann í viðtalinu við ABC News.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗