Framdi morð og sakaður um kynferðisbrot gegn barni en fær að vera áfram á Íslandi

Kærunefnd útlendingamála hefur fellt úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar um að vísa albönskum karlmanni úr landi. Maðurinn hlaut dóm fyrir morð í heimalandinu og hefur komið í nokkur skipti við sögu hjá lögreglu hér á landi, en hann er nú til rannsóknar vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni.

Í lýsingu í úrskurði nefndarinnar á málsatvikum kemur fram að maðurinn hafi lagt fram umsókn um dvalarleyfi fyrir maka Íslendings í janúar 2023. Honum hafi, samkvæmt lögum um útlendinga, verið heimilt að dvelja á landinu á meðan umsóknin væri til meðferðar.

Með dómi héraðsdóms í Albaníu, í desember 2007, hafi maðurinn verið sakfelldur og dæmdur til 18 ára fangelsisrefsingar, fyrir manndráp og vopnalagabrot. Í kjölfarið hafi einn þriðji hluti refsingar verið felldur niður og maðurinn hlotið 12 ára refsingu. Í ljósi þessa dóms hafi Útlendingastofnun óskað eftir umsögn lögreglunnar um hvort maðurinn hafi gerst brotlegur hér á landi eða hafi verið til rannsóknar í sakamáli. 

Síbrot

Samkvæmt umsögn lögreglunnar sé maðurinn skráður sakborningur í fjórum málum í kerfi lögreglunnar sem feli í sér sjö brot í heildina frá árinu 2018. Maðurinn hafi á árunum 2018 og 2019 verið grunaður um brot á lögum um atvinnuréttindi útlendinga og dvöl án dvalarleyfis. Þá hafi hann ekki hlýtt fyrirmælum lögreglu vegna brotsins árið 2019. Árið 2020 hafi lögreglu borist upplýsingar um að maðurinn hafi komið til landsins á meðan hann hafi verið í virku endurkomubanni og því grunaður um brot gegn banninu. Hann hafi verið handtekinn og fluttur úr landi. 

Þá hafi maðurin verið stöðvaður við akstur án gildra ökuréttinda árið 2024. Það sé mat lögreglu, þrátt fyrir að maðurinn hafi ekki hlotið dóm á Íslandi að horfa verði til þess að hann hafi hlotið dóm í heimaríki sínu fyrir manndráp og vopnaburð. Það sé því mat lögreglu að maðurinn sé raunveruleg, yfirvofandi og nægilega alvarleg ógn gagnvart grundvallarhagsmunum samfélagsins til að brottvísa honum. Þá kemur einnig fram í úrskurði nefndarinnar að fyrir liggi upplýsingar frá lögreglu um að mál sé til rannsóknar sem varði kynferðisbrot mannsins gegn barni.

Andmæli

Með vísan til dómsins í Albaníu, brota mannsins hér á landi og grunsins um kynferðisbrot gegn barni vísaði Útlendingastofnun manninum úr landi í febrúar á þessu ári, með 12 ára endurkomubanni. Maðurinn kærði þá ákvörðun til kærunefndar útlendingamála. Nefndin féllst á að brottvísun yrði frestað á meðan kæran væri til meðferðar.

Í kærunni kom fram að maðurinn ætti íslenskan maka og að þau ættu eitt barn saman. Fullyrt var að honum hafi verið brottvísað á grundvelli vægari skilyrða en lög gerðu ráð fyrir.

Kom einnig fram að við mat á lengd endurkomubanns bæri að taka mið af skilyrði 95. greinar útlendingalaga um raunverulega, yfirvofandi og nægilega alvarlega ógn. Af því leiddi að lengd bannsins þyrfti að vera í réttu hlutfalli við þá ógn sem talin væri stafa af viðkomandi. Með því að beita almennum heimildum laga um útlendinga í stað þeirra sérreglna sem giltu um manninn sem aðstandanda EES-borgara, hafi Útlendingastofnun brotið gegn lögmætisreglu stjórnsýsluréttar.

Ábótavant

Í niðurstöðu kærunefndar útlendingamála eru nánari lýsingar á dómnum sem maðurinn hlaut í Albaníu fyrir manndráp. Samkvæmt dómnum hafi hann skotið mann til bana en brotið verið framið í samverknaði við aðra einstaklinga. Ekki liggi fyrir gögn frá fangelsismálastofnun Albaníu um tímabil afplánunar mannsins. Af dómnum verði ráðið að hann hafi lokið afplánun á árunum 2016-2017. Séu því um níu til tíu ár frá því að hann lauk afplánuninni vegna dómsins.

Í samhengi við þetta sé unnt til líta til tímaviðmiða sem Alþingi hafi sett um brottvísun einstaklinga sem hafi hlotið dóm eða afplánað refsingu erlendis. Samkvæmt lögum um útlendinga sé heimilt að brottvísa útlendingi sem sé án dvalarleyfis ef hann hafi á síðustu fimm árum afplánað refsingu erlendis eða verið dæmdur þar til refsingar fyrir háttsemi sem að íslenskum lögum geti varðað fangelsi lengur en þrjá mánuði.

Kærunefnd útlendingamála segir að manndrápsdómurinn leiði ekki einn og sér til þess að nauðsynlegt sé að brottvísa manninum vegna öryggis ríkisins og almannahagsmuna. Leggja verði til grundvallar að fyrirliggjandi gögn málsins sýni með fullnægjandi hætti fram á að maðurinn sé ógn við öryggi ríkisins eða almannahagsmuni. Í því samhengi beri að líta til annarra gagna málsins um framferði hans hér á landi. Hann hafi brotið gegn lögum um útlendinga með því að hafa starfað og dvalið hér á landi án þess að hafa til þess tilskilin leyfi. 

Þá hafi maðurinn komið hingað til lands þrátt fyrir að vera í virku endurkomubanni. Auk þess hafi hann verið stöðvaður við akstur án ökuréttinda. Sú háttsemi sé ekki þess eðlis að hún teljist ógn við almannahagsmuni þrátt fyrir að hún sýni fram á ákveðið hegðunarmynstur brota mannsins. Verði því ekki tekið undir það mat lögreglu að maðurinn sé ógn við almannahagsmuni einungis þegar litið sé til manndrápsdómsins, frá Albaníu, og framangreindra brota mannsins, hér á landi, gegn lögum um útlendinga. Áréttað sé að umsögn lögreglu í málinu sé dagsett 5. júní 2025 og taki til að mynda ekki mið af kynferðisbrotamáli mannsins sem sé til meðferðar hjá Héraðssaksóknara. Mat lögreglu taki því ekki mið af málsatvikum í heild sinni og sé ábótavant af þeim sökum.

Áfram

Nefndin segist hafa aflað upplýsinga frá lögreglu hvar kynferðisbrotamálið væri statt en samkvæmt upplýsingunum sé málið, sem snúist um kynferðisbrot gegn barni yngra en 15 ára, til meðferðar hjá Héraðssaksóknara. Í fyrri úrskurðum nefndarinnar hafi verið komist að þeirri niðurstöðu að kynferðisbrot geti verið þess eðlis að þau varði almannahagsmuni. Umrætt kynferðisbrotamál sé alvarlegs eðlis og kunni að varða grundvallarhagsmuni samfélagsins. 

Verði þó að líta til þess að þetta sakamál sé á rannsóknarstigi og verði ekki talið að fyrirliggjandi gögn málsins séu fullnægjandi til að unnt sé að fella framferði mannsins undir ákvæði útlendingalaga um skilyrði fyrir brottvísun úr landi. Við það mat sé einkum litið til þess að fyrir liggi mjög takmörkuð gögn um skýrslutöku vegna þess máls auk þess sem ekki hafi verið gefin út ákæra eða komin dómsúrlausn í málinu. 

Þá liggi ekki fyrir gögn frá lögreglu sem gefi til kynna að maðurinn sé ógn við almannahagsmuni að öðru leyti. Fyrir verði að liggja rökstutt mat lögreglu og gögn sem sýni fram á umrædda ógn en mati lögreglu sé ábótavant í máli mannsins. Með hliðsjón af þessu sé nauðsynlegt að afla frekari og ítarlegri gagna um mál mannsins áður en unnt sé að taka afstöðu til þess hvort háttsemi hans hér á landi geti talist ógn við almannahagsmuni. Að þessu virtu séu skilyrði brottvísunar samkvæmt f-lið 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga ekki uppfyllt í málinu.

Ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun mannsins úr landi og endurkomubann til 12 ára er því felld úr gildi og maðurinn fær að dvelja áfram hér á landi.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅