Það verður enginn afgangur af þessari
Mjúk döðlukaka Helgu Gabríelu með volgri toffísósu og vanilluís er tilvalin í notalegar samverustundir á aðventunni. Samsett mynd/Aðsend
Helga Gabríela Sigurðardóttir, matreiðslumaður og smurbrauðsjómfrú, gerir einstaklega góðan mat. Það er gaman að fylgjast með henni í eldhúsinu, þar sem hún töfrar fram aðgengilega og fallega rétti sem eru heimilislegir með örlitlum rómantískum ítölskum blæ.
Þessi mjúka döðlutoffíkaka frá Helgu Gabríelu er tilvalin nú þegar veðrið kólnar og við erum farin að huga að notalegum samverustundum á aðventunni. Dökkur púðursykur og kardimommur gefa henni hlýlegan keim en volg toffísósan setur punktinn yfir i-ið. Með vanilluís og aukasósu til hliðar er hún freistandi eftirréttur sem gott er að njóta í góðum félagsskap.
Döðlutoffíkaka
Helga Gabríela Sigurðardóttir, matreiðslumaður og smurbrauðsjómfrú, gerir einstaklega góðar kökur. Ljósmynd/Aðsend
Notið hringform með gati, um 20–21 cm í þvermál, eða eldfast mót, um 27 × 18 cm.
- 200 g döðlur, án steina
- 250 ml sjóðandi vatn
- 1 tsk. matarsódi
- 75 g mjúkt smjör
- 120 g dökkur púðursykur
- 2 egg, við stofuhita
- 1 tsk. vanilludropar
- 180 g hveiti
- 1 tsk. lyftiduft
- ½ tsk. salt
- ½ tsk. kardimommur
Toffísósa
- 100 g smjör
- 150 g dökkur púðursykur
- 200 ml rjómi
- ½ tsk. vanilludropar
- ¼ tsk. salt, eða eftir smekk
Meðlæti
-
vanilluís
Aðferð
Döðlutoffíkaka
- Hitið ofninn í 160°C með yfir- og undirhita. Smyrjið mótið. Ef notað er hringform með gati skal einnig smyrja rörið í miðjunni og sáldra þunnu lagi af hveiti innan í formið.
- Saxið döðlurnar gróft, hellið sjóðandi vatninu yfir og hrærið matarsódanum saman við. Látið standa í 10–15 mínútur. Maukið döðlurnar ásamt öllum vökvanum og látið maukið kólna þar til það er volgt.
- Þeytið smjör og púðursykur saman í 3–4 mínútur. Bætið eggjunum við, einu í einu, og síðan vanilludropunum.
- Blandið hveiti, lyftidufti, salti og kardimommum saman. Hrærið þurrefnunum og döðlumaukinu til skiptis saman við smjörblönduna. Hrærið aðeins þar til allt hefur blandast saman.
- Hellið deiginu í mótið en fyllið það ekki meira en að tveimur þriðju hlutum. Bakið þar til prjónn sem stungið er í kökuna kemur út með rökum mylsnum en engu hráu deigi. Byrjið að athuga kökuna eftir 25 mínútur. Bökunartíminn fer eftir mótinu og dýpt deigsins.
- Látið kökuna standa í 10–15 mínútur áður en henni er hvolft úr hringforminu. Sé hún bökuð í eldföstu móti má bera hana fram beint úr því.
Toffísósa
- Setjið smjör, púðursykur, rjóma og salt í pott. Hitið rólega og hrærið þar til sykurinn hefur leyst upp.
- Látið malla við vægan hita í 4–6 mínútur.
- Takið pottinn af hitanum og hrærið vanilludropunum saman við.
- Hellið volgri sósu yfir kökuna og berið fram með vanilluís og aukasósu til hliðar.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
