Starfsfólk Chelsea aðvarað

Morgan Rogers breytti fantasy-liði sínu.

Morgan Rogers breytti fantasy-liði sínu. AFP/Glyn Kirk

Chelsea hefur varað starfsfólk sitt við því að val þess í Fantasy-deild ensku úrvalsdeildarinnar gæti óviljandi afhjúpað trúnaðarupplýsingar um liðið, samkvæmt BBC Sport.

Viðvörunin kom í kjölfar fullyrðinga um að sóknarmaðurinn Morgan Rogers og nokkrir starfsmenn hefðu fjarlægt João Pedro úr fantasy-liðum sínum fyrir 2:0-heimatap Chelsea gegn Tottenham. Ekki hafði verið greint opinberlega frá meiðslum hans í læri.

„Ég er ekki inni í þessu fantasy-dæmi, svo ég vissi það ekki,“ sagði Xabi Alonso, knattspyrnustjóri Chelsea, við BBC Sport þegar hann var spurður út í málið.

Starfsfólkið fékk tölvupóst þar sem áhættan sem fylgir því að nota innherjaupplýsingar á opinberum leikjavettvöngum var útskýrð. Chelsea lítur á atvikið sem einangrað tilvik og hyggst sem stendur ekki grípa til frekari takmarkana.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅