Byrjaði 2008 og er ennþá á blússandi siglingu

Vignir Már Garðarsson byrjaði með fyrirtækið Fasteignaljósmyndun.is árið 2008.

Vignir Már Garðarsson byrjaði með fyrirtækið Fasteignaljósmyndun.is árið 2008. Samsett mynd

Fallegar ljósmyndir geta vakið áhuga á eign og orðið fyrsta skrefið að því að eignast nýtt heimili. Það er enda gjarnan sagt að myndir segi meira en þúsund orð. Vignir Már Garðarsson, fasteignaljósmyndari og eigandi Fasteignaljósmyndun, veit hvað þarf til að eign njóti sín á myndum. Hann segir góðan undirbúning skipta miklu máli og ljósmyndirnar gegni lykilhlutverki þegar kemur að því að kynna væntanlegum kaupendum eignina.

„Ég byrjaði að mynda fasteignir árið 2008 og hef því unnið við það í 18 ár. Ég hef alltaf haft áhuga á ljósmyndun og hafði myndað mér til ánægju í nokkur ár þegar ég ákvað að sameina áhugamál og atvinnu og það vatt fljótt upp á sig.“

Að sögn Vignis Más eru myndirnar oft það sem ræður því hvort fólk staldrar við fasteignaauglýsingu.

„Myndirnar eru það fyrsta sem væntanlegur kaupandi sér og því mikilvægt að sýna eignina í sínu besta ljósi. Fólk fer yfir myndirnar áður en það skoðar nokkurn texta svo þær þurfa að grípa athyglina strax.“

Hér má sjá fallegt eldhús sem Vignir myndaði.

Hér má sjá fallegt eldhús sem Vignir myndaði. Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun

Undirbúningurinn skiptir máli

Seljendur geta sjálfir lagt sitt af mörkum til að ná sem bestum myndum. Vignir Már segir undirbúninginn ekki aðeins snúast um þrif og tiltekt, heldur einnig hvernig rýmin birtast í myndavélinni.

„Það skiptir miklu máli að undirbúa fyrir myndatöku til að við náum að sýna eignina í sínu besta ljósi. Að sjá heimilið á myndum er öðruvísi en að sjá það með berum augum og oft eru litlir hlutir sem geta dregið athyglina frá því sem skiptir máli. Fyrir utan það augljósa eins og að búa um rúm og taka til þá getur verið gott að færa eða jafnvel fjarlægja stóla og húsgögn sem loka rýmum út frá sjónarhorni myndavélarinnar. Við erum með undirbúningslista á vefsíðunni sem við sendum gjarnan á fólk fyrir myndatökuna. Einnig er hreyft við hlutum og húsgögnum í tökunni sjálfri.“

Þegar hann er spurður hvað gleymist helst við undirbúninginn nefnir hann smáatriði sem fólk tekur ef til vill lítið eftir dagsdaglega.

„Það er ýmislegt sem þarf að huga að og ég hef oft sagt að fólk er líklega á sínu besta tímakaupi við undirbúninginn. Þar á ég við að ég hef fulla trú á að vel undirbúin og mynduð eign seljist yfirleitt á hærra verði vegna vinnunnar sem lögð var í undirbúning og kynningu. Það sem mér dettur helst í hug er að fjarlægja segla og myndir af ísskápnum. Það bið ég fólk alltaf um að gera því það getur verið mjög truflandi á myndum.“

Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is

Rétt sjónarhorn skiptir máli

Vignir Már leggur áherslu á að myndirnar sýni kosti eignarinnar en gefi um leið raunhæfa hugmynd um hana. „Þetta snýst um að sýna eignina á einfaldan, skýran og heiðarlegan hátt og í sínu besta ljósi. Myndirnar eiga að hjálpa fólki að fá raunhæfa tilfinningu fyrir rýmunum, skipulaginu og tengingu áður en komið er á staðinn og að verða ekki fyrir vonbrigðum því myndirnar sýndu eitthvað allt öðruvísi. Einnig er gaman að bæta við „stemningsmyndum“ þegar eignin býður upp á það. Þar á ég við svona þrengri skot sem sýna kannski meira falleg húsgögn eða útsýni úr eldhúsglugga.“

Ljósmynd/Fasteignaljósmynd.is

Þar þurfi meðal annars að huga að áhrifum víðlinsu og birtunnar.

„Nú hefur víðlinsan ekki gott orð á sér í fasteignaauglýsingum og það er einmitt það sem ég reyni helst að passa upp á, að rýmið virki ekki miklu stærra á myndunum en það í raun er. Þetta er ákveðin kúnst því maður vill einnig sýna sem mest af rýminu án þess að ýkja það. Það sem mér finnst oft mest villandi er þegar ég mynda frekar dimmar eignir sem eru jafnvel bara með glugga á einni hlið íbúðarinnar, en þá eru myndirnar mun bjartari. Það þarf að finna ákveðið jafnvægi í þessu.“

Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is

Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅