„Allt í hnút“ og útiloka ekki verkföll

Óskar segir engan samningsvilja af hálfu Icelandair.

Ekkert hefur þokast í kjaradeilu Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair og enginn nýr fundur hefur verið boðaður hjá ríkissáttasemjara.

Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, segir lítinn samningsvilja vera hjá Icelandair og útilokar ekki að gripið verði til verkfallsaðgerða.

„Þetta er allt í hnút,“ segir Óskar í samtali við mbl.is.

Síðasti fundur deiluaðila hjá ríkissáttasemjara fór fram á þriðjudag en að sögn Óskars skilaði hann engum árangri.

„Það er lítill áhugi frá Icelandair á að semja við okkur. Það er bara niðurstaðan, hvernig sem á því stendur.“

Tilgangslítið að halda áfram

Flugvirkjar aflýstu fyrirhuguðum verkfallsaðgerðum 23. september síðastliðinn eftir að samkomulag náðist um að freista þess að ljúka kjaraviðræðum innan fjögurra vikna. Sá frestur er nú löngu liðinn án þess að samningar hafi náðst.

„Það var samkomulag sem innihélt það að reyna að ná samkomulagi á tímanum. Það var ekki að finna á mótaðilanum að það væri samningsvilji og við erum bara enn á sama stað.“

Óskar segir tilgangslítið að halda áfram fundahöldum meðan ekkert þokast í viðræðunum.

„Svo kemst maður alltaf að einhverjum tímapunkti að það er enginn tilgangur til að funda meðan aðilar hreyfa sig ekki með eitt né neitt. Þá er eins gott að sitja heima og hugsa málið.“

Boltinn hjá Icelandair

Aðspurður um næstu skref segir Óskar félagið þurfa að fara yfir stöðuna og meta framhaldið. Engin ákvörðun hafi verið tekin um frekari aðgerðir. Hann útilokar þó ekki að verkfallsaðgerðir komi aftur til greina.

„Það er ekkert útilokað.“

Óskar segir boltann jafnframt vera hjá Icelandair og að enn sé svigrúm til að koma viðræðunum aftur af stað.

„Það er náttúrulega tækifæri enn þá fyrir viðsemjandann að láta í sér heyra. Það er ekkert bannað að tala saman,“ segir Óskar.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅