Leikið með sorgarbönd í kvöld
Mínútu þögn verður fyrir landsleik karlalandsliða Íslands og Búlgaríu í Þjóðadeildinni í Plovdiv í Búlgaríu í kvöld til að minnast tólf manns sem létust í umferðaslysum í landinu á þriðjudag.
Um 50 manns slösuðust einnig í fjöldaárekstrum á hraðbraut nærri Jambol í suðausturhluta Búlgaríu. Mikil þoka var á svæðinu og þjóðarsorg var lýst yfir eftir slysin. Búlgarskir leikmenn munu bera sorgarbönd í leiknum.
Leikurinn hefst klukkan 19.45 og er búist við um 3.000 áhorfendum á Hristo Botev-leikvanginn, sem tekur tæplega 19 þúsund manns. Um þúsund miðar hafa selst og er reiknað með að 20 til 30 Íslendingar verði í stúkunni.
Ísland er ósigrað á toppi riðils síns í C-deild Þjóðadeildarinnar og gæti tryggt sér efsta sætið í kvöld. Lúxemborg og Eistland eigast við á sama tíma.
Sigurvegari riðilsins fer beint upp í B-deild en liðið í öðru sæti fær tækifæri í umspili til að vinna sér inn sæti í B-deildinni.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗