Afturelding fær Tibbling frá Fram
Afturelding hefur gert tveggja ára samning við sænska miðjumanninn Simon Tibbling en hann kemur til félagsins frá Fram. Simon er mjög reynslumikill leikmaður sem hefur leikið 366 leiki í efstu deildum í Hollandi, Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Íslandi á ferli sínum. Hinn 32 ára gamli Simon var valinn í lið ársins í Bestu deildinni árið 2025 eftir góða frammistöðu þar með Fram.
Simon á frábæran feril að baki en hann hefur meðal annars orðið bikarmeistari í Danmörku með Bröndby og bikarmeistari í Hollandi með Groningen. Simon varð Evrópumeistari U21 landsliða með Svíþjóð á sínum tíma og hann á einnig A landsleik að baki.
Auk þess að spila með Aftureldingu þá mun Simon koma inn í þjálfarateymi 2. flokks karla með Alejandro Zambrano sem er fagnaðarefni fyrir félagið.
Afturelding vill þakka Fram fyrir fagmannleg og góð vinnubrögð í tengslum við félagaskiptin.
,,Ég er mjög ánægður og stoltur af því að semja við Aftureldingu. Ég hlakka mikið til að takast á við þetta verkefni og get ekki beðið eftir að byrja,” sagði Simon eftir undirskrift.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗