Keflavík fær Patrek Aron
Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur samið við Patrek Aron Grétarsson sem kemur til félagsins frá KFA á Austurlandi.
Patrekur er tvítugur miðjumaður sem átti afar gott tímabil með KFA í 2. deild. Hann kom að 18 mörkum á tímabilinu og var fyrir frammistöðu sína valinn í lið ársins í deildinni.
Norðfirðingurinn Patrekur er spenntur fyrir nýju verkefni og telur Keflavík vera rétta staðinn til að taka næstu skref á knattspyrnuferlinum.
„Ég er mjög spenntur fyrir því að ganga til liðs við Keflavík. Þetta er stórt félag með mikla sögu og metnað og ég tel þetta vera rétta skrefið fyrir mig á þessum tímapunkti. Það hafa margir Austfirðingar komið hingað í gegnum tíðina og staðið sig vel, sem sýnir hversu gott umhverfi þetta er fyrir unga og metnaðarfulla leikmenn til að taka næsta skref. Ég hlakka til að takast á við þessa áskorun, leggja mitt af mörkum til liðsins og halda áfram að þróast sem leikmaður,“ segir Patrekur Aron.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗