Áratugalangar fjölskylduerjur enduðu fyrir dómi - „Man bara eftir því að hafa orðið vitni að því þegar hann réðst á pabba“

Erjur innan fjölskyldu sem virðast ná aftur til 10. áratugar síðustu aldar fóru fyrir dómstóla þegar maður stefndi bróðursyni sínum fyrir meiðyrði. Snúast deilurnar einna helst um rekstur félags sem hefur með höndum eignarhald og rekstur fasteigna. Var bróðursonurinn sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur og nú hefur Landsréttur staðfest þann dóm.

Fram kemur í dómi héraðsdóms að félagið hafi verið stofnað á síðasta áratug og hafi bróðursonurinn, föðurbróðurinn og faðir þess fyrrnefnda, ásamt fleiri skyldmennum, komið að rekstrinum. Kom til deilna þeirra á milli og viðhafði bróðursonurinn þrenn ummæli í tölvupóstum sem föðurbróðir hans sætti sig ekki við og stefndi honum í kjölfarið fyrir meiðyrði.

Faðir hins stefnda er látinn en í tölvupóstunum vísaði bróðursonurinn meðal annars til atviks frá 10. áratug síðustu aldar.

Krafðist föðurbróðirinn þess að þrenn ummæli bróðursonar hans, í tölvupóstunum, yrðu dæmd dauð og ómerk. 

Í þeim fyrstu sagðist hann ekki vita hvers vegna föðurbróðir hans hafi hatað bróður sinn, föður hins stefnda, af jafn miklu offorsi og raun hafi borið vitni. Bróðursonurinn bætti síðan við:

„Man bara eftir því að hafa orðið vitni að því þegar hann réðst á pabba svona 1993-1994.“

Bróðursonurinn hafði einnig haldið fram að föðurbróðir sinn hefði viðhaft langvarandi og ofbeldisfulla tilraun til að taka yfir áðurnefnt félag, og logið um skuldir og innistæður þess.

Loks skrifaði bróðursonurinn í tölvupósti til Skattsins að með framferði sínu hefði föðurbróðir hans tæmt alla sjóði félagsins.

Ráðast á

Í dómi héraðsdóms kemur fram að bróðursonurinn hafi neitað að í ummælunum um að föðurbróðir hans hefði ráðist á föður hans, hefði falist ásökun um refsivert athæfi.

Í dómi Landsréttar segir að í málinu rekist á réttur föðurbróðurins til friðhelgi einkalífs og tjáningarfrelsi bróðursonarins. Ummælin um árás föðurbróðurins á sinn eigin bróður feli í sér staðhæfingu um staðreynd, þar sem þau lýsi tilteknu atviki sem eigi að hafa gerst fyrir meira en þremur áratugum síðan. Föðurbróðirinn hafni því að þetta atvik hafi átt sér stað og telji það hugarburð bróðursonar síns. Bróðursonurinn haldi því hins vegar fram fram að með ummælunum hafi hann verið að rifja upp æskuminningu og lýsa eigin upplifun af atvikum sem gerðust í raun.

Hugleiðingar

Landsréttur segir að ummælin séu ekki í ásökunar- eða upphrópunarstíl. Þau séu hluti af hugleiðingum um það hvers vegna föðurbróðurinn hafi, að mati bróðursonarins, haft óbeit á föður hans. Í framhaldinu sé því velt upp hvort föðurbróðurinn hafi yfirfært þessa meintu andúð yfir á bróðursoninn.

Í tölvupóstinum sé því ekki sérstaklega lýst með hvaða hætti föðurbróðurinn eigi að hafa ráðist á bróður sinn. Í skýrslu sinni fyrir héraðsdómi hafi bróðursonurinn sagt að þetta atvik hefði átt sér stað 1991 eða 1992 þar sem föðurbróðir hans hefði misst stjórn á skapi sínu og þeir bræðurnir hafi svo í kjölfarið stjakað hvor við öðrum. Samkvæmt þessu verði að leggja til grundvallar að með hinum umdeildu ummælum hafi bróðursonurinn fullyrt
að komið hafi til einhvers konar átaka eða stympinga milli föður hans og föðurbróður. Ekki sé þó fallist á með föðurbróðurnum að í þessum ummælum hafi falist fyrirvaralaus fullyrðing um refsiverða háttsemi hans.

Bróðursonurinn hafi ekki fært viðhlítandi sönnur á að hið umdeilda atvik hafi átt sér stað, til dæmis með því að leiða vitni fyrir dóm eða leggja fram gögn sem renni stoðum undir staðhæfingu hans. Facebook Messenger samskipti hans við aðila sem vísað hafi til „ofbeldi[s]“ föðurbróðurins og „uppákom[u]“ dugi ekki til lögfullrar sönnunar um þetta atriði. Á hinn bóginn sé ekkert sem bendi til þess að ummælin hafi verið höfð uppi gegn betri vitund eða í þeim tilgangi að sverta mannorð föðrubróðurins. Verði í því sambandi að líta til þess að ummælin séu sett fram í tölvupóstsamskiptum þar sem viðtakendur voru þrír einstaklingar, auk föðurbróðurins sem hafi því átt hægt um vik innan þessa lokaða hóps að svara ásökunum bróðursonar síns eða krefja hann skýringa á ummælunum.

Ámælisvert

Landsréttur vísar einnig til þess að fram komi í dómi héraðsdóms að föðurbróðurinn hafi margsinnis og um margra ára skeið sakað bróðurson sinn um ámælisverða háttsemi og horfa verði til þess við mat á samhengi ummæla hins síðarnefnda. Hafi sérstaka þýðingu að ummælin séu hluti af svari hans við tölvupósti föðurbróðurins sem bróðursonurinn og hluti annarra viðtakenda póstsins hafi hæglega mátt skilja sem ásakanir um glæpi þeirra, yfirhylmingu og þjófnað. Föðurbróðurinn hafi vart getað búist við öðru en að slíkum ávirðingum yrði svarað fullum hálsi.

Loks hafi föðurbróðurinn ekki sýnt fram á að ummælunum hafi verið dreift víðar eða að þau hafi haft sérstök áhrif á hann eða valdið honum álitshnekki. Viðtakendur póstsins hafi þar að auki þekkt þær langvarandi og harðvítugu deilur sem höfðu verið milli aðila málsins á vettvangi áðurnefnds félags og mátt því eðli málsins samkvæmt taka ávirðingum þeirra á báða bóga með ákveðnum fyrirvara.

Þegar tekið hafi verið mið af efni og framsetningu ummælanna, um að föðurbróðirinn hafi ráðist á bróður sinn, föður hins stefnda, samhenginu sem þau voru sett fram í, þeim vettvangi sem þau birtust á, því að þau hafi ekki falið í sér fyrirvaralausa fullyrðingu um refsiverða háttsemi og að ekkert liggi fyrir um frekari áhrif þeirra, verði þau ekki talin óviðurkvæmileg þannig að uppfyllt séu skilyrðu almennra hegningarlaga til þess að ómerkja þau.

Lýsing

Þegar kemur að ummælunum um að föðurbróðirinn hafi gert langvarandi og ofbeldisfulla tilraun til að taka fyrir félagið og logið um skuldir þess og innistæður segir Landsréttur að af samhengi þeirra sé ljóst að í þeim felist ekki ásökun í garð föðurbróðurins um beitingu andlegs eða líkamlegs ofbeldis. Um sé að ræða lýsingu bróðursonarins á þeirri upplifun sinni að föðurbróðurinn hafi með óbilgirni og yfirgangi reynt að taka félagið yfir. Það sé ekki hægt að fallast á að uppfyllt séu skilyrði til ómerkingar ummælanna.

Hvað varðar þriðju ummælin, um að föðurbróðurinn hafi tæmt sjóði félagsins, sem viðhöfð voru í tölvupósti til starfsmanns Skattsins, segir Landsréttur að af samhengi þeirra megi ráða að bróðursonurinn sé með þeim ekki að saka föðurbróðurinn um fjárdrátt, eða sambærilegt refsivert auðgunarbrot, heldur að lýsa þeirri skoðun sinni að málarekstur föðurbróðurins sem tengdist rekstri og stjórnun félagsins hafi haft miklar og neikvæðar fjárhagslegar afleiðingar fyrir félagið. Rétturinn fellst ekki á að uppfyllt séu skilyrði til ómerkingar ummælanna.

Kröfum föðurbróðurins um að umrædd þrenn ummæli bróðursonar hans yrðu dæmd dauð og ómerk er því hafnað.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅