Mikil reiði innan United vegna brottreksturs Carrick – „Viðbjóðsleg framkoma“
Mikil óánægja ríkir meðal starfsmanna Manchester United vegna þess hvernig félagið stóð að brottrekstri Michael Carrick á fimmtudaginn.
Samkvæmt Daily Mail telja starfsmenn að Carrick og aðstoðarmenn hans hafi verið illa meðhöndlaðir af forráðamönnum félagsins.
Carrick mætti á æfingasvæðið í Carrington klukkan 7:50 en yfirgaf það klukkan 10:18 eftir fund með Omar Berrada og Jason Wilcox.
Brottreksturinn var síðan staðfestur með 142 orða yfirlýsingu klukkan 10:37.
Aðstoðarmenn Carrick, þar á meðal Steve Holland, Jonathan Woodgate og Jonny Evans, eru einnig sagðir hafa yfirgefið félagið.
Sérstaklega hefur framkoman gagnvart Carrick og Evans vakið reiði, enda hafa þeir verið tengdir United í meira en tvo áratugi.
Starfsmenn taka undir orð Gary Neville, sem lýsti framkomu stjórnenda sem „viðbjóðslegri“.
Á meðan Carrick beið örlaga sinna í Manchester funduðu forráðamenn United með Sir Jim Ratcliffe í Mónakó.
Daily Mail segir kostnað United við ráðningar og brottrekstur þjálfara á valdatíma INEOS stefna í 50 milljónir punda.
Félagið hefur jafnframt sagt upp 450 starfsmönnum undanfarin þrjú ár.
Innan félagsins eru því vaxandi efasemdir um hvort þjálfaraskipti ein og sér leysi vandann.
Mauricio Pochettino hefur nú verið ráðinn eftirmaður Carrick og tekur við 18. nóvember.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗