Arion er ekki eins og Landsvirkjun
Það er misskilningur að hjá Arion banka hafi tíðkast sams konar forfundir stjórnar og tíðkast hafi hjá stjórn Landsvirkjunar. Í svörum frá Arion banka við fyrirspurn Morgunblaðsins segir að í starfsreglum stjórnar Arion banka sé almennt gert ráð fyrir því að stjórn fundi með bankastjóra og eftir þörfum öðrum stjórnendum eða starfsmönnum bankans.
„Jafnframt er í starfsreglunum gert ráð fyrir því að stjórn fundi ein, án þátttöku bankastjóra eða annars starfsfólks, þegar þurfa þykir en að minnsta kosti einu sinni á ári,“ segir í svörum bankans. Er það útfært þannig í stuttu máli að á dagskrá stjórnarfunda er alltaf valkvæður liður þar sem stjórn getur, kjósi hún það, fundað án þátttöku starfsfólks bankans. Sá liður er reglum samkvæmt nýttur að minnsta kosti einu sinni á ári. „Þegar stjórn fundar án þátttöku starfsfólks er það í raun ekki til að taka stórar ákvarðanir heldur til að ræða þau mál sem þau telja ástæðu til að ræða með þessum hætti. Bankastjóri eða annað starfsfólk er svo upplýst eftir þörfum.“
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗