Getur stjórn Landsvirkjunar ráðið nýjan forstjóra?

Andrés Magnússon, Björn Ingi Hrafnsson, Yrsa Sigurðardóttir, Ragnar Jónasson, Snædís Ögn Flosadóttir og Georg Lúðvíksson eru gestir Stefáns Einars Stefánssonar í Spursmálum. Samsett mynd

Hver er staða Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra í lok vikunnar nú þegar Landsvirkjunarmálið hefur enn undið upp á sig? Getur stjórnin sem nú er yfir fyrirtækinu ráðið nýjan forstjóra þrátt fyrir skakkaföllin að undanförnu?

Þessu svara stjórnmálarýnendurnir Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu og Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður formanns Miðflokksins í Spursmálaþætti dagsins.

Þátturinn er öllum aðgengilegur í spilaranum hér að neðan og hefst klukkan 14.00.

Glæpsamlegar umræður og verðbréfasjóðir

Þá mæta þau á vettvang, glæpasagnahöfundarnir Ragnar Jónasson og Yrsa Sigurðardóttir. Þú hafa bæði gefið út bók fyrir þessi jól en þau standa einnig fyrir mikilli glæpasagnahátíð sem nú stendur yfir en hún hóf göngu sína árið 2013 og hefur vaxið mjög að burðum á þeim þrettán árum sem síðan eru liðin. Þau fara yfir fréttir vikunnar með Stefáni Einari.

Í lok þáttar ræða þau Georg Lúðvíksson hjá Spesíu og Snædís Ögn Flosdóttir, forstöðumaður markaða hjá Arion banka um þóknanir í fjármálakerfinu þegar kemur að fjárfestingum einstaklinga í verðbréfasjóðum. Hafa bankarnir verið að ofrukka fólk og er Spesía að slá nýjan tón á markaðnum? Allt kemur það í ljós á vettvangi Spursmála.

Sneisafullur og spennandi þáttur á leið í loftið klukkan 14.00 í dag.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅