Fimm af sex falla í flokkinn „nokkur áhætta“
Endurskoðunarnefnd borgarinnar vakti sérstaklega athygli á því í bókun að skýrslan hefði komið út árið 2022 og stjórnendur hefðu enn ekki lokið úrbótum vegna ábendinga sem fælu í sér nokkra áhættu í rekstri borgarinnar. mbl.is/Ólafur Árdal
Úrbótum vegna sex af sjö ábendingum sem Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar setti fram um innkaup og samningsstjórnun árið 2022 er enn ólokið. Fimm þessara sex ábendinga falla í áhættuflokkinn „nokkur áhætta“.
Þetta kemur fram í eftirfylgniskýrslu Innri endurskoðunar og ráðgjafar Reykjavíkurborgar sem lögð var fram á fundi borgarráðs í gær. Unnið hefur verið að úrbótum vegna allra sex ábendinganna en þær hafa aðeins verið innleiddar að hluta.
Endurskoðunarnefnd borgarinnar vakti sérstaklega athygli á því í bókun að skýrslan hefði komið út árið 2022 og stjórnendur hefðu enn ekki lokið úrbótum vegna ábendinga sem fælu í sér nokkra áhættu í rekstri borgarinnar.
Ófullnægjandi yfirsýn yfir innkaup og kostnað
Að mati Innri endurskoðunar hefur verið unnið að því að styrkja umgjörð innkaupa og samningsstjórnunar með þróun og innleiðingu verklags og upplýsingakerfa. Fyrirliggjandi gögn nægi þó ekki til að staðfesta fullnægjandi innleiðingu og virkni úrbóta vegna ábendinganna sex.
Óloknar úrbætur varða meðal annars tengingu innkaupasamninga við fjárhagsupplýsingar, framkvæmd eftirlits og reglubundna skýrslugjöf til innkaupa- og framkvæmdaráðs. Þá er enn unnið að úrbótum vegna skilamats verkefna og samræmds verklags um ábyrgð, skráningu og stjórnun samninga.
Í skýrslunni segir að áhættan felist einkum í ófullnægjandi yfirsýn yfir innkaup og samningskostnað, óskýrri ábyrgð á eftirliti með samningum og ófullnægjandi skýrslugjöf og skilamati.
Þetta geti orðið til þess að stjórnendur og innkaupa- og framkvæmdaráð hafi ekki nægilegar upplýsingar nógu tímanlega til að greina frávik í kostnaði eða efndum samninga og bregðast við þeim. Þá geti reynst erfitt að meta niðurstöður verkefna með hliðsjón af upphaflegum áætlunum.
Stefnt að því að ljúka úrbótum á næsta ári
Í viðbrögðum stjórnenda kemur fram að unnið sé að verkefni sem nefnist Samningastjórinn. Markmiðið er að bæta yfirsýn og tengja saman upplýsingar um samninga, innkaup og reikninga.
Innri endurskoðun telur mikilvægar aðgerðir hafa verið hafnar til að styrkja tengingu innkaupasamninga við fjárhagsupplýsingar. Meðal annars hefur verið gert kleift að skrá samningsnúmer við bókun reikninga í fjárhagskerfi aðalsjóðs og við innsendingu reikninga í reikningagátt borgarinnar. Frekari þróun og prófanir séu fyrirhugaðar.
Samkvæmt viðbrögðum stjórnenda er áætlað að úrbótum vegna þessarar ábendingar ljúki á þriðja ársfjórðungi 2027. Áætlað er að ljúka úrbótum vegna hinna fimm ábendinganna á fyrsta eða öðrum ársfjórðungi sama árs.
Einni ábendingu lokað
Upprunalega úttektin kom út í júní 2022. Þar voru settar fram sjö ábendingar og þrjár tillögur. Fimm ábendinganna voru metnar fela í sér nokkra áhættu og tvær litla áhættu.
Eftirfylgni með einni ábendingu er nú lokið. Hún varðaði samræmi innkaupastefnu, innkaupareglna og samþykktar innkaupa- og framkvæmdaráðs, meðal annars um skýrslugjöf. Innkaupastefnan var endurskoðuð og samþykkt í apríl á þessu ári og innkaupareglurnar uppfærðar samhliða.
Innri endurskoðun mun áfram fylgjast með framgangi úrbóta vegna ábendinganna sex sem enn eru opnar.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗