Stálu milljörðum með fölsuðum myndsímtölum
Að sögn FBI hefur þjófnaðurinn átt sér stað á síðustu 18 mánuðum. Þrjótarnir hafa beint spjótum sínum að fólki í dulritunargeiranum og þeim hluta netgeirans sem kenndur er við Web3. Ljósmynd/Colourbox
Norðurkóreskir tölvuþrjótar, sem njóta stuðnings stjórnvalda landsins, hafa stolið meira en 400 milljónum Bandaríkjadala, jafnvirði rúmlega 49,3 milljarða króna, með auðkennisþjófnaði og fölsuðum myndsímtölum.
Þetta kom fram í tilkynningu bandarísku alríkislögreglunnar FBI í gær.
Að sögn FBI hefur þjófnaðurinn átt sér stað á síðustu 18 mánuðum. Þrjótarnir hafa beint spjótum sínum að fólki í dulritunargeiranum og þeim hluta netgeirans sem kenndur er við Web3.
FBI kallar blekkingaraðferðina „FaceStealer“. Hún felst í því að villa á sér heimildir og nota gervigreind til að telja fórnarlömbum trú um að þau séu í myndsímtali við einhvern sem þau þekkja.
Sviðsetja tæknilega bilun
Þrjótarnir lokka fórnarlambið á myndfund undir fölsku yfirskini. Þar nota þeir djúpfölsun með gervigreind til að líkja eftir einstaklingi sem viðkomandi þekkir og öðlast þannig traust hans.
Því næst sviðsetja þeir tæknilega bilun. Fórnarlambið er fengið til að smella á hlekk eða fylgja fyrirmælum til að leysa vandann, en við það er spilliforriti komið fyrir í tæki þess.
Með því að nýta tengiliðalista fórnarlambsins, samfélagsmiðla þess og samskiptaforrit geta þrjótarnir síðan komið fram í nafni þess og lagt gildru fyrir næsta fórnarlamb.
FBI segist hafa lagt hald á meira en 900 myndskeið úr vefmyndavélum fórnarlamba FaceStealer.
Geta blekkt jafnvel reyndustu notendur
Patrick Grandy, aðstoðaryfirmaður svæðisskrifstofu FBI í Los Angeles, segir FaceStealer afar áhrifaríka aðferð sem geti blekkt jafnvel reyndustu tölvunotendur sem séu vel meðvitaðir um öryggismál.
Hún nýti sér traust fólks á útbreiddum myndfundakerfum og persónulegum tengslum sem því séu kær.
„Ef þú getur ekki ímyndað þér aðstæður þar sem þú gætir fallið í gildruna hugsarðu ekki nógu skapandi,“ segir Grandy.
Aðskilið frá þjófnaðinum hjá Binance
FBI sakaði fyrr í þessum mánuði tölvuþrjóta tengda Norður-Kóreu um að hafa stolið sex milljörðum Bandaríkjadala, jafnvirði um 740 milljarða króna, af dulritunargjaldmiðlavettvanginum Binance. Norðurkóresk stjórnvöld hafna þeirri ásökun.
FBI tekur fram að FaceStealer-málið sé aðskilið frá innbrotinu hjá Binance.
Brett Leatherman, yfirmaður aðgerða hjá netbrotadeild FBI, segir norðurkóresk stjórnvöld reiða sig á ágóða af umfangsmiklum þjófnaði á dulritunargjaldmiðlum til að fjármagna ólöglega vopnaáætlun sína. Þau hafi stolið milljörðum dala undanfarin ár.
内容来自 mbl.is - Tækni og Vísindi,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗