Þórir Hergeirsson í nýtt starf hjá HSÍ

Þórir Hergeirsson er nýr afreksstjóri HSÍ.

Þórir Hergeirsson er nýr afreksstjóri HSÍ. Ljósmynd/HSÍ

Handknattleikssamband Íslands hefur ráðið Þóri Hergeirsson sem afreksstjóra sambandsins. Þórir stýrði norska kvennalandsliðinu frá 2009 til 2024 og varð einn sigursælasti landsliðsþjálfari handboltasögunnar.

Undir hans stjórn vann Noregur ellefu gull á stórmótum, tvo ólympíumeistaratitla, þrjá heimsmeistaratitla og sex Evrópumeistaratitla. Alls vann liðið til 17 verðlauna á þeim 20 stórmótum sem hann stýrði því á.

Þórir kom inn í þjálfarateymi norska landsliðsins árið 2001 áður en hann tók við sem aðalþjálfari átta árum síðar. Hann kvaddi starfið með glæsibrag árið 2024 þegar Noregur vann bæði Ólympíugull í París og Evrópumeistaratitilinn.

HSÍ hyggst nýta reynslu hans til að efla umgjörð, fagmennsku og þróun afreksstarfsins, frá yngri landsliðum upp í A-landslið karla og kvenna.

„Við sjáum mikil tækifæri í því að nýta þekkingu Þóris til að efla umgjörð, fagmennsku og þróun afreksstarfsins, allt frá yngri landsliðum upp í A-landslið karla og kvenna,“ segir í tilkynningu sambandsins.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅