Roger Waters skilur við fimmtu konuna
Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 13. nóvember 2026 13:30
Waters of Chavis voru gift í fimm ár. Mynd/Getty
Rokkstjarnan Roger Waters, fyrrverandi meðlimur Pink Floyd, hefur sótt um skilnað við eiginkonu sína Kamilah Chavis eftir fimm ára hjónaband. Chavis er fimmta eiginkona hins umdeilda rokkara.
Breska blaðið The Independent greinir frá þessu.
Hinn 83 ára Waters, sem á auðæfi metin á um 40 milljarða króna, sótti um skilnað við eiginkonu sína, hina 48 ára Kamilah Chavis, á þriðjudag, 10. nóvember. Waters og Chavis hafa verið gift síðan árið 2021.
Ekki allt útkljáð
Söngvarinn og bassaleikarinn Waters ratar gjarnan í fréttirnar vegna digurbarkalegra pólitískra yfirlýsinga sinna. Einkum vegna dyggs stuðnings hans við málstað Palestínumanna. En einkalíf hans fær einnig sína dálksentimetra á síðum götublaðanna.
Sjá einnig:
James Hetfield lét umdeild ummæli um pólitík falla og fékk það óþvegið frá Roger Waters – „Algjört fífl“
Waters og Chavis eiga engin börn saman en í skilnaðargögnunum kemur hins vegar fram að ekki eru öll mál útkljáð á milli þeirra. Væntanlega á þá eftir að gera upp fjármálahliðina á hjúskapnum.
Fimm eiginkonur
Waters og Chavis giftust í október árið 2021 en þau höfðu kynnst á tónlistarhátíðinni Coachella þar sem hún var að vinna. Á Facebook síðu sína skrifaði Waters: „Ég er svo glaður, loksins fann ég einhverja til að halda út lífið.“ Hann reyndist ekki sannspár þá.
Árið 1969 giftist Waters fyrstu eiginkonu sinni og æskuást, Judith Trim. Sama ár birtist mynd af henni í umslagi plötunnar Ummagumma, fjórðu plötu Pink Floyd. Þau skildu árið 1975.
Ári seinna giftist Waters aðalskonunni Carolyne Christie. Þau eignuðust tvö börn en skildu árið 1992.
Waters var ekki lengi fráskilinn því að árið 1993 giftist hann þriðju eiginkonu sinni, Priscilla Phillips. Þau eignuðust einn son en skildu árið 2001.
Árið 2004 trúlofaðist Waters leikkonunni og kvikmyndagerðarkonunni Laurie Durning. Þau giftust árið 2012 en því hjónabandi lauk árið 2015.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗