Rogers ver Palmer – „Þetta er lygi, hann vill spila fyrir England“

Morgan Rogers, miðjumaður enska landsliðsins, hefur komið Cole Palmer til varnar eftir að Thomas Tuchel ákvað að velja hann ekki í landsliðshópinn fyrir leikina gegn Króatíu og Spáni.

Palmer hefur verið gagnrýndur fyrir meintan skort á áhuga á landsliðinu, en Rogers segir þær ásakanir fráleitar.

„Þetta er lygi. Hann vill vera hér. Hann vildi fá kallið og spila fyrir þjóð sína,“ sagði Rogers við BBC Radio 5 Live.

Rogers, sem skoraði í 2-1 sigri Englands gegn Króatíu, segir Palmer hafa glímt við erfið meiðsli undanfarin misseri.

„Hann átti erfitt ár vegna meiðsla og var á mjög slæmum stað. Hann vill vera besta útgáfan af sjálfum sér.“

Rogers segir mikilvægt að Palmer hugsi um heilsuna til lengri tíma. „Hann vill spila næstu tíu til fimmtán árin.“

Tuchel hefur sagt Palmer hafa misst af of mörgum tækifærum til að heilla sig.

Rogers vonast þó til að sjá félaga sinn aftur í landsliðstreyjunni.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅