Umframáskrift í hlutafjárútboði Bláa Lónsins
Útboðið hófst 10. nóvember og lýkur áskriftartímabilinu klukkan 16 í dag, föstudaginn 13. nóvember. Morgunblaðið/Eggert
Umframáskrift hefur fengist í áskriftarbók A í almennu hlutafjárútboði Bláa Lónsins, samkvæmt tilkynningu félagsins.
Útboðið hófst 10. nóvember og lýkur áskriftartímabilinu klukkan 16 í dag.
Fram kemur að leitast verði við að skerða ekki áskriftir undir einni milljón króna í áskriftarbók A og undir fimm milljónum króna hjá starfsmönnum félagsins, í samræmi við skilmála útboðsins. Fjárfestar geta áfram skráð sig fyrir hlutum þar til áskriftartímabilinu lýkur.
Gert er ráð fyrir að niðurstöður útboðsins verði birtar eigi síðar en mánudaginn 16. nóvember. Landsbankinn og Fossar fjárfestingarbanki hafa umsjón með útboðinu.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗