Dómur staðfestur yfir manni sem stórslasaði konu á leið í Bónus
Ritstjórn DV
Föstudaginn 13. nóvember 2026 13:13
Bílastæðið við Lóuhóla þar sem slysið átti sér stað. Mynd: Skjáskot/Já.is.
Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni sem bakkaði á konu á bílastæðinu við verslunarkjarnann í Lóuhólum í Breiðholti. Konan var fótgangandi en bæði hún og maðurinn voru á leið í verslun Bónus, í verslunarkjarnanum. Konan slasaðist mikið og hlaut lífshættulega áverka.
Héraðsdómur sakfelldi manninn fyrir umferðarlagabrot og stórfelldar líkamsmeiðingar af gáleysi. Dómur héraðsdóms var kveðinn upp í desember á síðasta ári en í honum kemur fram að konan hafi verið greind með, samkvæmt læknisvottorði, mörg rifbrot, fleiri en þrjú með blóð-/loftbrjósti, brot á höfuðkúpu og andlitsbeinum, opið sár á fingri/um án skaða á nögl, marga yfirborðsáverka á höfði og marga yfirborðsáverka á úlnlið og hendi. Var það rakið í vottorðinu að konan hafi hlotið marga mjög alvarlega og lífshættulega áverka og fjölmörg beinbrot í andliti, brjóstkassa og mjaðmargrind.
Afturdekkjum bifreiðarinnar var raunar ekið yfir konuna. Maðurinn fullyrti að hann hefði sýnt næga aðgát en vitni andmæltu því og furðuðu sig á fullyrðingum hans um að hafa ekki séð konuna þar sem bjart og heiðskírt hafi verið, en atvikið átti sér stað í mars 2024 um klukkan 16.
Þegar réttað var í héraðsdómi var konan enn að glíma við afleiðingar ákeyrslunnar.
Sjá einnig: Sakfelldur eftir örlagaríka ferð í Bónus
Gáleysi
Maðurinn áfrýjaði til Landsréttar en í dómi réttarins segir að með vísan til myndskeiðs úr eftirlitsmyndavél sem sýni aðstæður í umrætt sinn og atvikið sjálft sé staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að ástæða hafi verið fyrir manninn til að sýna sérstaka aðgæslu á fjölförnu bifreiðastæðinu. Eins sé staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að maðurinn hafi ekki litið nægjanlega vel í spegla eða á skjá bakkmyndavélar bifreiðar sinnar, ekki stöðvað bifreiðina þegar hann fann dynk heldur
bakkað henni áfram og þá fyrst stöðvað þegar vegfarendur bönkuðu á rúðuna hjá honum til að láta hann vita af konunni.
Þessu til viðbótar verði að líta til þess að myndskeiðið leiði í ljós að maðurinn hafi ekið bifreið sinni afar ógætilega umrætt sinn. Eigi það við um akstur inn á bifreiðastæðið, en þó sérstaklega akstur hans aftur á bak, áður en hann bakkaði á konuna, en myndskeiðið sýni að bifreið mannsins hafi vart numið staðar áður en henni hafi verið ekið hratt aftur á bak. Um mikið skeytingarleysi af hálfu mannsins hafi verið að ræða umrætt sinn. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms héraðsdóms verði staðfest niðurstaða hans um
mat á sök mannsins og ákvörðun miskabóta til konunnar.
Sakfelling mannsins og sú refsing sem hann hlaut í héraðsdómi stendur því óhögguð. Maðurinn var þar dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og til að greiða konunni 3,5 milljónir króna í miskabætur, auk dráttarvaxta. Konan hafði hins vegar krafist 5 milljóna í bætur.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗