Hjartnæm kveðja Carricks
Michael Carrick hefur sent stuðningsmönnum Manchester United kveðjubréf eftir brottrekstur sinn sem knattspyrnustjóri félagsins.
Hann þakkar þeim stuðninginn á erfiðum tímum og segist áfram ætla að hvetja liðið til dáða.
„Ég veit að úrslitin hafa ekki verið góð undanfarið, en þið hafið ekki sýnt mér annað en ást og stuðning þegar auðveldast hefði verið að snúa við mér bakinu, eins og flestir gera. Það skiptir meira máli en einn eða tveir sigrar,“ skrifar Carrick.
Hann þakkar einnig leikmönnum, þjálfarateymi sínu og öðru starfsfólki félagsins fyrir samstarfið. Carrick segir það hafa verið gríðarleg forréttindi að stýra félaginu sem hann elski.
„Ég vil ekkert annað en velgengni Manchester United. Þetta félag hefur verið svo stór hluti af lífi mínu og það mun aldrei breytast,“ skrifar hann. „Héðan í frá verð ég með ykkur, fylgist með af hliðarlínunni og hvet strákana áfram.“
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗